Fara í efni
Fréttir

Mikill uppgangur í vetrarferðaþjónustu

Mynd: Þorgeir Baldursson

Erlendum farþegum til Akureyrarflugvallar fjölgaði árið 2025 um 9,5% frá árinu áður og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þetta er meðal þess sem kom fram á ráðstefnunni Segjum sögur af fjárfestingum, sem haldin var á vegum Markaðsstofa Norðurlands í vikunni.

Á ráðstefnunni var farið yfir stöðu og horfur í ferðaþjónustu á svæðinu, þar sem meðal annars kom fram að umsvif í vetrarferðaþjónustu hafi aukist verulega á undanförnum árum. Jafnframt eru umfangsmikil uppbyggingarverkefni í gangi eða á undirbúningsstigi víða um Norðurland og bæði fyrirtæki og fjárfestar eru bjartsýn á framtíð greinarinnar.

Fulltrúar Isavia og Icelandair voru meðal frummælenda á ráðstefnunni ásamt forsvarsfólki ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi. Þar ríkti almenn samstaða um að aukið millilandaflug og markviss markaðssetning hefðu átt stóran þátt í uppgangi ferðaþjónustunnar og skapað grundvöll fyrir frekari fjárfestingar.

Að sögn Arnheiðar Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, er mikill kraftur í atvinnugreininni þrátt fyrir ákveðna óvissu sem víða gætir í ferðaþjónustu. Hún bendir á að samanlagðar fjárfestingar þeirra fyrirtækja sem kynntu verkefni sín á ráðstefnunni nemi um 45 milljörðum króna.

 

 

Aukið millilandaflug lykilforsenda

Vetrarferðaþjónustan hefur verið í sérstakri sókn og er aukið millilandaflug talið lykilforsenda þeirrar þróunar. Þar vegur þungt aukið vetrarflug breska flugfélagsins easyJet, sem hefur fjölgað ferðum til Akureyrar og lengt vetraráætlun sína á síðustu árum. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia komu 107.214 erlendir farþegar til Akureyrarflugvallar á árinu 2025. Það er 9,5 prósenta aukning frá árinu á undan þegar komufarþegar voru tæplega 98 þúsund. Fjöldinn hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár og hefur aldrei verið meiri.

Þá benda gögn til þess að þeir ferðamenn sem koma um Akureyrarflugvöll séu að mörgu leyti frábrugðnir þeim sem lenda í Keflavík. Meira en helmingur erlendra farþega sem fljúga til Akureyrar hefur áður heimsótt Ísland, á meðan hlutfallið er mun lægra meðal þeirra sem koma um Keflavíkurflugvöll. Það þykir benda til þess að margir þeirra sæki sérstaklega í þá náttúru, afþreyingu og upplifun sem Norðurland hefur upp á að bjóða.

Forsvarsmenn greinarinnar telja því að tækifærin til frekari vaxtar séu umtalsverð, sérstaklega ef áfram tekst að efla millilandaflug og styrkja sérstöðu Norðurlands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn allt árið um kring.

Streymt var beint frá ráðstefnunni en upptöku af henni má nálgast hér.