Fréttir
Farþegar skildir eftir vegna ölvunar
Flugvél Transavia á Akureyrarflugvelli. Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands.
Sex manna hópur sem átti bókað far með flugvél hollenska félagsins Transavia frá Akureyri til Amsterdam í morgun var skilinn eftir vegna ölvunar þriggja í hópnum. Þetta var gert að ósk flugfélagsins. Nokkur töf varð á brottför vélarinnar vegna þessa, þó ekki mikil, en uppákoman vakti athygli annarra farþega enda mikil ölvun í flugi sjaldgæf í seinni tíð. Farþegi í vélinni greindi akureyri.net frá og upplýsingarnar fengust staðfestar.