Fara í efni
Menning

Listasafnið býður hunda velkomna

Menningarleg samvera fyrir hunda og eigendur þeirra verður á Listsafninu. Mynd: listak

Á fimmtudagskvöldið kemur verður boðið upp á nýjung á Listsafninu, þar sem hundar eru boðnir velkomnir á safnið í fylgd eigenda sinna. Það er heldur óvenjulegur viðburður, en ef einhversstaðar er hugsað út fyrir kassann, þá ætti það einmitt að vera á listasöfnum eða öðrum skapandi stöðum. 

Opið verður frá kl. 19 til 22 og ókeypis inn fyrir eigendur í fylgd hunda, segir í viðburðarlýsingu á Facebook. Léttar veitingar verða í boði fyrir fjórfætlinga og fyrstu gestir fá óvæntan glaðning. Á Ketilkaffi verður hægt að kaupa sérstakar veitingar fyrir besta vininn.
Tekið er fram að hundar þurfa að vera í taumi og eru á ábyrgð eigenda sinna.
 
 

Myndir frá Ugly Duck Gallery í London, þar sem sérstök sýning var sett upp fyrir hunda. List er fyrir alla!

Hundar geta notið listar

Eftir stutta rannsókn á internetinu, kemst blaðamaður því næst að það hafi áður verið tekið tillit til hunda í tengslum við listasýningar. Í Ugly Duck Gallery í London var haldin sérstök sýning fyrir ferfætlingana árið 2016, þar sem listamaðurinn Dominic Wilcox fékk fleiri listamenn til liðs við sig og skapaði bæði rými fyrir hunda og myndlist sérstaklega fyrir hunda. Hér má lesa um þessa sýningu og skoða fleiri skemmtilegar myndir.

Ekki hefur verið sett upp sérstök sýning fyrir hundana á Listasafninu á Akureyri, en þeir geta notið þess að skoða fjölbreytta samsýningu norðlenskra listamanna, yfirlitssýningu Margrétar Jónsdóttur, Tími - Rými - Efni, sýningu Þóru Sigurðardóttur eða margmiðlunarsýningu Heimis Hlöðverssonar.