Fara í efni
Fréttir

Líneik Anna tilkynnir framboð hjá Framsókn

Líneik Anna Sævarsdóttir alþingismaður hefur tilkynnt formlega að hún gefi kost á sér í 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar. Akureyri.net greindi frá því á dögunum að Líneik Anna stefndi að þessu og nú hefur það verið staðfest. Hún hefur verið alþingismaður Norðausturkjördæmis 2013 til 2016 og frá 2017, eftir að hafa starfað að sveitarstjórnarmálum frá 1998.

Á Alþingi hefur Línek Anna starfað í allsherjar- og menntamálanefnd, efnahags- og viðskiptanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og í Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál, að því er segir í tilkynningu sem send var út í morgun.

„Meðal baráttumála hennar eru jafnrétti og jafnræði íbúa landsins og þar með góðar samgöngur, bæði í raunheimum og netheimum. Samgöngur eru lykill að tækifærum og árangri í samfélagsþróun. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er grundvöllur íslensks efnahagslífs og því þarf samspil manns og náttúru að vera viðvarandi viðfangsefni stjórnmálanna. Markvissar aðgerðir í umhverfismálum eru mikilvægar og þurfa að byggja á upplýstri umræðu. Líneik er tilbúin að fást við öll þau verkefni sem samfélagið stendur frammi fyrir hverju sinni hvort sem það eru náttúruöflin, farsóttir eða eitthvað allt annað. Eitt stærsta verkefnið framundan er að fjölga störfum og styrkja atvinnulífið í kjölfar COVID 19,“ segir í tilkynningunni.

Framsóknarmenn kjósa um sex efstu sæti á framboðslistanum í póstkosningu sem stendur yfir alla marsmánuð.

Líneik Anna hefur búið á Fáskrúðsfirði í Fjarðabyggð í aldarfjórðung. Hún er uppalin á Fljótsdalshéraði en hefur auk þess búið um tíma á höfuðborgarsvæðinu og á Vesturlandi. Líneik Anna er gift Magnúsi Ásgrímssyni og eiga þau 4 börn á aldrinum 20 til 31 árs, auk tveggja barnabarna. Líneik er líffræðingur með kennsluréttindi og hefur lengst af starfað við fræðslumál og stjórnun; við kennslu, verkefnastjórn og sem skólastjóri á Fáskrúðsfirði.