Landvinnslur Samherja fá enn hæstu einkunn
Landvinnslur Samherja á Akureyri og Dalvík uppfylla báðar ýtrustu gæðakröfur sem almennt eru gerðar til matvælaframleiðslu skv. árlegri úttekt alþjóðlegu vottunarstofunnar Intertek SAI Global sem lauk í vikunni. Greint er frá þessu á vef Samherja, svo og að báðar hafi landvinnslurnar fengið hæstu einkunn vottunarstofunnar.
Um er að ræða svokallaðan BRC staðal en alþjóðlegir kaupendur afurða gera yfirleitt kröfu um að birgjar þeirra hafi umrædda vottun og sýni þannig fram á að um hágæða framleiðslu sé að ræða.
Enginn fyrirvari
„BRC staðallinn leggur meðal annars áherslu á matvælaöryggi, gæði framleiðsluhátta, gæði og heilnæmi afurða. Vottunin staðfestir að gæðastjórnunarkerfi viðkomandi fyrirtækis stendst ítrustu kröfur sem settar eru á alþjóðlega matvælaframleiðendur. Samherji hefur um langt árabil haft umrædda vottun og unnið náið með alþjóðlegum vottunarstofum sem reglulega taka út alla framleiðsluferla,“ segir á vef fyrirtækisins.
Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja segir að fulltrúar Intertek SAI Global taki út landvinnslurnar að jafnaði einu sinni á ári. „Stundum eru heimsóknir vottunarstofunnar tilkynntar með ákveðnum fyrirvara en að þessu sinni var fyrirvarinn enginn. Í stuttu máli snýst BRC staðallinn um að fyrirtæki sýni með óyggjandi hætti fram á að þau hafi skipulagt, skjalfest og virkt gæðakerfi til að tryggja framleiðslu á öruggum matvælum. Þessar úttektir eru mjög ítarlegar, enda erum við að framleiða fyrir kröfuharða viðskiptavini, þar meðtaldar stærstu verslunarkeðjur heims.“
Allir þátttakendur í úttektinni
„Landvinnslurnar hafa undanfarin ár fengið hæstu einkunn. Við segjumst framleiða hágæða afurðir og þess vegna er mikilvægt að fá það skjalfest frá alþjóðlegum og viðurkenndum vottunarstofum,“ segir Guðbjörg Ósk. Úttektin gekk vel að hennar sögn. „Við erum þrjár í gæðateyminu sem vinnum náið með starfsfólki vottunarstofunnar í slíkum úttektum. Auk mín, þær Birta María Guðmundsdóttir og Hanna Kristín Gunnarsdóttir. Í svona viðamiklum úttektum eru í raun allir þátttakendur, starfsfólk í vinnslunni, viðhaldsteymi og stjórnendur. Ég er afar stolt af framleiðslunni og starfsfólkinu eftir þessa stóru úttekt. Enn eitt árið fáum við gæðastimpil, hæstu mögulegu einkunn. Við spilum í efstu deild,“ segir Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir.