Fara í efni
Menning

Hulda Rós, Magnús og Örlygur í Listasafninu

Þrjár sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri á morgun, laugardaginn 16. maí kl. 15.00. Þær eru:

  • Andlegar verðmætavindur Magnúsar / Magnús Helgason
  • Sýning um heilagan fugl / Örlygur Kristfinnson
  • S-I-L-I-C-A-0-3 / Hulda Rós Guðnadóttir

Magnús Helgason

Andlegar verðmætavindur Magnúsar / Magnús‘ spiritual value-wheels

Magnús Helgason (1977) hefur búið og starfað á Akureyri síðan 2016. Hann útskrifaðist frá myndlistarakademíu AKI í Hollandi 2001 og hefur síðan helgað myndlist, ljósmyndun og tilraunakenndri kvikmyndagerð krafta sína.

Í tilkynningu frá Listasafninu segir:

Sýningin Andlegar verðmætavindur Magnúsar er tilraun til að leiða orku náttúrunnar sem streymir úr rafmagnsinnstungum Listasafnsins á Akureyri inn í rafdrifin hreyfilistaverk, sem munu svo sáldra andlegum verðmætum yfir áhorfendur.

„Myndlistin hefur margskonar tilgang. Hún getur afhjúpað óréttlæti og vakið okkur til umhugsunar um það sem betur má fara í samfélaginu. Stundum getur listin orðið afl til breytinga, en hún hefur líka frelsi til þess að vera tilgangslaus. Listamaðurinn má gera það sem hann gerir, af því bara! Markmið mitt er ekki að breyta heiminum, heldur frekar að veita áhyggjulaus augnablik. Verkin mín eiga að vera óvænt og fallegt gleðiskot til þeirra sem þau sjá. Ég ætla verkunum að kalla fram barnslega gleði og vil að þau þjóti framhjá heilanum og stingist beint í hjörtu áhorfenda.“

Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði, Myndstefi og Akureyrarbæ. Hún stendur til 6. september í haust.


Örlygur Kristfinnsson

Sýning um heilagan fugl / An exhibition about a holy bird

„Örlygur Kristfinnsson fæddist á Siglufirði 1949. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1969–73 og stundaði lengi málverkið, en hefur unnið með vatnsliti í seinni tíð og á að baki allmargar sýningar. Örlygur var forstöðumaður og sýningahönnuður hjá Síldarminjasafni Íslands í aldarfjórðung. Auk myndlistar hefur hann lagt stund á endurgerð gamalla húsa og skrifað bækur sem fjalla um mannlíf á síldarárunum.

Sýning Örlygs er tileinkuð geirfuglinum og samanstendur af vatnslitamyndum, leirverkum og innsetningum með fjörugripum. Þar birtist geirfuglinn sem táknmynd fyrir óteljandi lífverur, stórar og smáar, sem eru í útrýmingarhættu.

Geirfuglinn var algengur við Norður-Atlantshaf, ófleygur og auðveld bráð. Með landnámi Evrópumanna í Norður-Ameríku var fuglinum slátrað af miklu miskunnarleysi. Síðustu geirfuglar á jörðinni voru drepnir í Eldey við suðvesturströnd Íslands 3. júní 1844, í þágu kaupmanna og náttúrugripasafnara. Æ síðan hefur samviskubits gætt í þjóðarsál Íslendinga. Aldauði fuglsins leiddi til umræðu og aðgerða til varna fyrir viðkvæmar fuglategundir og því má líta á hann sem fyrirmynd náttúruverndar.“

Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Sýningin stendur til 6. september á þessu ári.


Hulda Rós Guðnadóttir

S-I-L-I-C-A-0-3 / S-I-L-I-C-A-0-3

Hulda Rós Guðnadóttir (f. 1973) er starfandi myndlistarkona með menntun í mannfræði og gagnvirkri hönnun auk myndlistar. Hulda býr og starfar í Berlín, hefur tekið þátt í yfir hundrað sýningum víða um heim og skapað sér sérstöðu á vettvangi samtímalistar. „Fræðilegt og faglegt baklandið skín í gegn í verkum hennar, sem unnin eru á mörkum myndlistar, kvikmyndagerðar og samfélagsrýni,“ segir í tilkynnningu frá Listasafninu.

„Í verkum sýningarinnar fjallar Hulda um samspil náttúruauðlinda, vistkerfa, efnahags og valds. Hún vinnur með efni er snerta starfsemi kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík og umbreytir þeim í vettvang gagnrýninnar íhugunar, annars vegar kísil sem verður til við bræðslu og hins vegar kolamola úr ofnum verksmiðjunnar. Efnið er ekki aðeins miðill heldur virkur þátttakandi í merkingarmyndun og í anda ný-efnishyggju verða eiginleikar þess og uppruni hluti af verkinu sjálfu.“

Gerð verka var styrkt af Myndlistarsjóði.

Sýningarstjóri: Sigríður Örvarsdóttir. Sýningin stendur til 6. september á þessu ári.