Fara í efni
Mannlíf

„Heldurðu að þú getir spilað þig í gegnum lífið, ungi maður?“

Fyrsta alvöru hljómsveit Rafns, hljómsveit Birgis Marinóssonar. Frá vinstri, Pálmi Stefánsson, Gunnar H. Tryggvason, Rafn og Birgir Marinósson og víbrafónninn sem Birgir spilaði á. Og allir í einkennisklæðnaði, saumuðum hjá JMJ.

„Það má rekja áhuga minn á tónlist langt aftur. Ungur hafði ég strax áhuga á alls konar tónlist. Faðir minn var í Karlakór Akureyrar og söng mikið heima en hann og félagar hans létu sér ekki nægja söngæfingar hjá kórnum. Að loknum æfingum komu þeir stundum heim og héldu áfram að syngja með lögg í glasi og gilti þá einu hvað klukkan var. Þetta orsakaði það að ég lærði mörg af þessum lögum og man sum enn.“

Þetta segir Rafn Sveinsson, trommuleikarinn kunni, í Súlum, tímariti Sögufélags Eyfirðinga. Það hefur orðið að samkomulagi að akureyri.net birti annað veifið kafla úr greinum sem komið hafa í tímaritinu.

Margt ber á góma hjá Rafni og margir eru nefndir á nafn enda hefur hann troðið upp með fjölda tónlistarmanna enda með um 2000 dansleiki ferilskránni, auk ýmissa annarra tónlistarviðburða. Hér er brot úr fróðlegri og skemmtilegri grein Rafns sem er um leið ómetanlegt innlegg í tónlistarsögu Íslands.

Rafn hefur víða spilað og sungið. Hann hefur haldið nákvæmt bókhald yfir öll þau böll sem hann hefur spilað á, hvar þau haldin, laun og hverjir spilað. Alls á Rafn um 2000 dansleiki á ferilskránni, fyrir utan uppákomur af margvíslegu tagi þar sem hann hefur bæði spilað og sungið. Hér eru þeir félagarnir í Mývatnssveit, Rafn á bongó-trommur og Númi Adolfsson þenur nikkuna.

Trommur voru málið

Um trommuáhugann segir Rafn: „Ég varð snemma áhugasamur um trommuleik. Af hverju veit ég ekki, þetta bara gerðist. Þegar ég var sendill á skrifstofum KEA vann þar maður að nafni Rögnvaldur Gíslason. Hann hafði verið trommari en var hættur að spila. Ég greip því tækifærið og keypti af honum eitthvað af gamla trommudótinu hans. Þar á meðal nýjan Simbal (disk) sem hann hafði fengið vöruinnkaupadeild KEA til að panta fyrir sig frá Bandaríkjunum. Hann var af gerðinni Zildtian og þótti mjög góður. Ég notaði hann alla mína spilatíð og á hann enn, að vísu núna sem veggljós sem einn sona minn bjó til.

Á þessum tíma komu gjarnan tónlistarmenn að sunnan og spiluðu á Hótel KEA yfir sumarmánuðina en þeir héldu æfingar eftir hádegi. Ég var oft að sniglast á hótelinu, var þá sendill á skrifstofu KEA og tíðum sendur á hótelið með eitt og annað. Þar var maður að nafni Reynir Sigurðsson – hann spilaði seinna með Sinfóníuhljómsveit Íslands – sem leyfði mér oft að taka í trommurnar og kenndi mér undirstöðu æfingar en það var eina tilsögnin sem ég hef fengið í trommuleik.“

Fjölmargar ljósmyndir prýða grein Rafns og raunar ritið allt. Þar er þessi af Rafni með simbalinn sem nú er orðinn að veggljósi á heimili hans á Akureyri.

Hvað ætlar þú að gera við svona mikla peninga?

Grein Rafns í Súlum ber heitið Heldurðu að þú getir spilað þig í gegnum lífið, ungi maður? Um tilurð þess segir hann:

„Í janúar 1963 kaupi ég nýtt trommusett, PREMIER, í hljóðfæraverslun Poul Bernburg í Reykjavík á 37,000 krónur. Þetta var mikill peningur á þeim tíma því að hljóðfæri voru í lúxustolli. Til viðmiðunar má nefna að þá vorum við að fá 600 krónur á mann fyrir böll í Freyvangi og Laugarborg.

Ég hafði farið á fund Jóns Sólnes, bankastjóra Landsbankans, og falast eftir láni.

Hann hafði spurt: „Og hvað ætlar þú að gera við svona mikla peninga ungi maður?“

Ég svaraði sem var að ég ætlaði að kaupa trommusett.

Hann endurtók hneykslaður og með töluverðri áherslu: „Trommusett, heldurðu að þú getir spilað þig í gegnum lífið ungi maður? Nei, hér færð þú ekki neitt.“

Ég fór svo suður, með Gunnari, og náði að semja við verslun Poul Bernburgs um að borga vissa upphæð á mánuði og þannig gat ég klofið kaupin á nýja trommusettinu. Gunnar hins vegar keypti gítar.

Með nýja settið var svo haldið til Hríseyjar og spilað þar á sjómannadegi. En þegar leið á kvöldið og fram á nóttina gerði svo mikla þoku að báturinn sem átti að fara með okkur í land fór hvergi. Okkur var þá boðið í næsta hús í partý upp á mat og drykk. Og þar vorum við fram á morgun en þá birti og við komumst í land aftur. Um verslunarmannahelgina spiluðum við á Fáskrúðsfirði, bæði laugardag og sunnudag, en síðasta ball Hljómsveitar Pálma Stefánssonar var 22. september 1963 í Alþýðuhúsinu Akureyri. Samtals urðu þetta 88 dansleikir þetta ár sem sveitin lifði, eða um sjö í mánuði hverjum.“

Freistingarnar voru miklar

Hér er gripið niður í greinina þar sem Rafn segir frá nýrri hljómsveit verður til.

„Sveinbjörn kemur aftur til liðs við okkur Reyni og Þorsteinn, svo og Axel Clausen gítarleikari en Hjalti hættir. Ég tek því að mestu við söngnum með trommuleiknum. Þá kaupir Reynir nýtt hljóðfæri, Cembalett, sem var nokkurs konar rafmagnspíanó og mjög vinsælt í hljómsveitum á þessum tíma.

Þetta nýja band kallaðist Astro. Við hefjum leik 2. júní 1964 í Alþýðuhúsinu og spiluðum mikið hér austur undan og um verslunarmannahelgina í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Þann 17. september spiluðum við á Hótel KEA með danskri hljómsveit, The Telstars, sem var hér á tónleikaferð. Síðasta ball Astro með þessari liðsskipan var 28. september í Alþýðuhúsinu en samtals urðu þau 48.

Næsta breyting er sú að Þorstein Kjartansson hættir en til okkar kemur Kristinn S. Kristjánsson (Kiddi Palli) og söngvarinn Óðinn Valdimarsson sem þá var orðinn landsfrægur. Hann hafði verið fyrir sunnan en var nú kominn norður aftur. Bakkus gerði honum lífið erfitt og hann átti það til að lalla fram í sal á miðju balli og koma ekki aftur. Þegar við ávíttum Óda svaraði hann: „Ég er að safna vinsældum.“

Fyrsta alvöru hljómsveit Rafns, hljómsveit Birgis Marinóssonar. Frá vinstri, Pálmi Stefánsson, Gunnar H. Tryggvason, Rafn og Birgir Marinósson og víbrafónninn sem Birgir spilaði á. Og allir í einkennisklæðnaði, saumuðum hjá JMJ.

Ódi var indælisdrengur og sjálfum sér verstur. Og freistingarnar voru sannarlega miklar. Það var alltaf verið að bjóða okkur í eftirpartí, sem ég þáði aldrei. Já og gjarnan borið í okkur vín á meðan við vorum að spila. Ég man að á Sjómannadagsballi í Hrísey var komin löng glasaröð hjá einum félaga okkar. Ég vissi að hann var veikur fyrir og hafði sagt við hann fyrir ballið að drykkja yrði ekki liðin á meðan við værum að spila.

„Við erum að vinna og megum ekki verða fullir,“ sagði ég. Hann stóðst prófið að þessu sinni en um leið og ballinu lauk hvolfdi hann í sig úr öllum glösunum sem varð til þess að við urðum að bera hann í land meðvitundarlítinn.

Öðru sinni vorum við að spila í Neskaupstað. Morguninn eftir þegar við vorum að tína dótið okkar í bílinn kom í ljós að einn félagann vantaði. Daginn áður hafði verið varðskip á höfninni og áhöfnin á ballinu en skipið siglt snemma um morguninn. Þegar við erum þarna búnir að hlaða bílinn og í þann veginn að leggja í hann sjáum við hvar varðskipið kemur brunandi og í land stekkur okkar maður, heldur framlágur eftir drykkju næturinnar.“

Laxar og Póló

Astro hafði ekki fyrr lagt upp laupana en til varð hljómsveitin Laxar sem í fyllingu tímans hóf samstarf við Hljómsveitina Póló:

„Þarna ákveðum við í hljómsveitinni Löxum og Hljómsveitin Pólo, sem Pálmi Stefánsson var með, að taka Alþýðuhúsið á leigu yfir sumarið. Þá var opið í Sjallanum öll kvöld til kl. 11.30 en togarasjómönnum fannst það ekki nóg. Þeir höfðu samband og vildu hafa böll þegar þeir væru í landi en þá kom Svalbakur inn á mánudegi, Kaldbakur á þriðjudegi og Harðbakur á miðvikudegi og svo framvegis. Þannig að við höfðum opið frá klukkan tvö til eitt um nóttina en notuðum tímann frá kl. 21 til æfinga. Við skiptumst á um að spila, Laxar kannski á mánudögum og þriðjudögum og Pólo á miðvikudögum og fimmtudögum. Þetta gerðum við tvö sumur í röð.

Á þessum tíma gat fólk farið út að dansa öll kvöld vikunnar. Við höfðum nú kannski ekki mikið út úr þessu en það var gaman. Við spiluðum á 79 böllum, síðasta ballið var 2. apríl á Hótel KEA. Þá hætti Sæbjörg.

Sama bandið hélt áfram nema að nú kom ný söngkona, Þorbjörg Ingvadóttir. Hún hóf að syngja með okkur 19. apríl 1969 á Hótel KEA. Áfram var sami þvælingur á okkur. Við spiluðum tvö kvöld í röð á Stöðvarfirði 30. og 31. ágúst og fórum svo vestur í Búðardal 7. september.

Þann 20. september spiluðum við í Hlégarði í Mosfellsbæ. Daginn eftir fórum við í upptöku hjá Ríkisútvarpinu og helgina þar á eftir aftur tvö kvöld á Stöðvarfirði. Þar höfðum við með okkur svefnpoka og sváfum á senunni innan um hljóðfærin en það var eini staðurinn sem var með teppi á gólfinu. En loftið var ekki gott, mettað reyk og ryki eftir ballið. En þetta lét maður sig hafa.“

Rafn Sveinsson við trommusettið dýra sem bankastjórinn Jón Sólnes taldi hin verstu kaup.

Flogið fyrir Tryggva

Önnur minning tengist hljómsveitinni Úthljóði: „Þann 11. september flugum við með Tryggva Helgasyni sem rak hér flugfélag og átti tveggja hreyfla Beechcraft vél sem passaði vel fyrir heila hljómsveit. Við flugum til Hornafjarðar þar sem átti að slá upp balli. Þegar við erum að fara heim aftur á sunnudeginum kemur maður til Tryggva og spyr hvort hann geti ekki sett sig niður á Vopnafjörð í leiðinni.

„Ég ræð engu,“ svarar Tryggvi. Maðurinn snýr sér þá til mín en ég var þá lengi búinn að standa fyrir hljómsveitum, sá um ráðningar og uppgjör og það annað sem þurfti til að halda öllu gangandi. Ég svara manninum um hæl að það sé í stakasta lagi að skutlast með hann. En þegar við komum yfir Vopnafjörð er ansi lágskýjað. Tryggvi fer þá í einhverja takka og segir: „Ætli við förum ekki bara hérna niður.“

Þegar við komum niður úr skýjunum blasir flugvöllurinn við í beinni stefnu. Lendingin gengur eins og í sögu. Maðurinn stekkur frá borði og við í loftið aftur. Ég sat fram í hjá Tryggva og titlaði mig vitaskuld aðstoðarflugstjóra. Þetta tók Tryggvi bókstaflega og sagði við mig: „Þetta er stefnan og þetta er hæðin, nú tekur þú við, ég ætla að sofna aðeins.“

Hann hafði verið á ballinu kvöldið áður sem sat í honum. Ég tók nú við, hélt stefnunni þar til við komum yfir Vaðlaheiði en þá tók Tryggvi við aftur og lenti.

Það var afar gott að eiga við Tryggva og lítið dýrara að fljúga með honum en að leigja bíl undir okkur og græjurnar. Hann var fáorður en ábyggilegur og alltaf sanngjarn.“

Hljómveitin Casablanca. Rafn Sveinsson, Árni Þorvaldsson, Grétar Ingvarsson og Ólafur Héðinsson.

„Hvað kostar einn hálftími í viðbót?“

„Nú tekur við Hótel KEA bandið, Þórarinn Magnússon hljómborð, Kiddi Palli, harmonikka og bassi, Grétar Ingvarsson gítar og ég. Við spiluðum þarna á nýársdag 1972. Þá varð enn breytingin, Grétar hættir en Örn Bjarnason kemur í staðinn á gítar. Svona vorum við á einu balli þann 15. janúar 1972. Þá kemur Erla Stefánsdóttir inn sem söngkona. Svona spilum við á fimm böllum, fyrsta 29. janúar og síðasta þann 19. febrúar. Þá hættir Örn en í hans stað kemur Friðrik Bjarnason á gítar. Þessi útgáfa er frá 26. febrúar en síðasta ballið er 13. maí. Alls 12 dansleikir. Svo spila ég með harmonikku- spilurunum, Hauki og Kalla, á Grenivík 4. júní í gamla samkomuhúsinu.

Þarna verða kaflaskil, Þórarinn Magnússon á hljómborð, Grétar Ingvars- son, gítar og söngur, og ég á trommur og tók líka lagið. Við réðum okkur sem hljómsveit fast á Hótel KEA en kölluðum okkur sem fyrr, Astró tríó. Fyrsta ballið okkar var 16. júní 1972. Við spiluðum mest á hótelinu en skruppum samt á Raufarhöfn, Vopnafjörð og út í Hrísey og til Grenivíkur.

Á Grenivík bar þetta til tíðinda. Þegar ballið var að verða búið kemur skipstjóri einn til mín og spyr:„Hvað kostar einn hálftími í viðbót?“ Ég segi honum það og við spilum áfram en þegar ég ætla að fara að kveðja kemur annar og með sömu spurningu. Og aftur er borgað á staðnum og við spilum áfram. Sem betur fór kom ekki þriðji skipstjórinn.“

Ferillinn í hnotskurn

Rafn kveður lesendur Súlna með þessum orðum:

„Það er gaman að líta til baka að loknu dagsverki og rifja upp í hvaða húsum ég hef spilað hér á Akureyri. Byrjum efst í bænum, þar er Skíðahótelið, svo Lón, þá Frímúrarahúsið og KA heimilið, Græni hatturinn, Vélsmiðjan, Pollurinn, Þórsheimilið, Gefjunarsalurinn, Oddfellowhúsið, Alþýðuhúsið, Hótel KEA, Lionssalurinn, gamla Lón og báðar kirkjurnar, safnaðarheimilin og dvalarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð.

Þá er það landsbyggðin allt frá Búðardal í vestri og austur í Höfn á Hornafirði, í nánast öllum bæjum á þessu svæði og öllum félagsheimilum. Á þessum þvælingi hefur maður hitt fullt af góðu og skemmtilegu fólki og tekist góður kunningsskapur við allmarga.

Allri þessari spilamennsku fylgdi að ég var mikið að heiman. Það voru böll annan í jólum, annan í páskum, um verslunarmannahelgar, um áramótin, bæði á gamlársdag og nýársdag, og svona mætti lengi telja. Það sem bjargaði mér var þolinmæði og skapgerð konu minnar, Kristínar Jónsdóttur. Við gátum til dæmis nánast aldrei farið á árshátíðir með vinnufélögum. Ég sagði gjarnan að við færum þegar við yrðum eldri en ég hélt alltaf áfram að spila og syngja þar til við vorum bæði hætt að vinna. Við fórum reyndar einu sinni á árshátíð Búnaðarbankans á Hótel Íslandi í Reykjavík en það var vegna þess að ég var að skemmta þar.

Mér er efst í huga þakklæti til allra þeirra góðu hljómsveitarmanna sem ég hef spilað með í gegnum öll þessi mörgu ár sem ég hef verið í þessum bransa. En nú er mál að linni enda engin böll lengur og ég á ekkert trommusett. Ég er ánægður að hafa lifað þessa tíð þar sem fólk dansaði heilu kvöldin en sat ekki bara á rassinum og drakk bjór við undirleik tónlistarmanna eins og nú er á tónleikum. Allt er sannarlega breytingum undirorpið en ég geng glaður frá borði og er ánægður að hafa fengið að vera svona lengi að en sár er söknuðurinn eftir þeim mörgu vinum sem horfnir eru. Þeir eru bara að spila á hörpu, sitjandi á skýi en það vantar trommara í bandið. Hann kemur, það megið þið bóka.“

 

Vinirnir Rafn Sveinsson og Gunnar H. Tryggvason, til vinstri, opnuðu hljóðfærasýningu í júlí árið 2009 og vakti hún mikla athygli. Í Súlum segir að sýningin hafi verið í Sunnuhlíð en hún var reyndar á Glerártorgi, í rými þar sem Penninn - Eymundsson var lengi með starfsemi en nú er hluti mathallar. 

Til gamans má vekja athygli á umfjöllun sem birtist í Morgunblaðinu 22. júlí undir fyrirsögninni „Kem ekki fleiri orgelum fyrir heima hjá mér“ sem var tilvitnun í orð Gunnars heitins. Smellið á úrklippuna úr Morgunblaðinu hér að neðan til að lesa.