Fara í efni
Umræðan

Heilsuhagur – hagsmunasamtök notenda heilbrigðisþjónustu

Á undanförnum árum hefur umræða almennings um heilbrigðismál aukist mikið samfara því að almenningur er almennt upplýstari um réttindi sín til heilbrigðisþjónustu. Fjöldi almannaheillafélaga, með mismunandi hugmyndafræði, starfar í þágu sjúklinga og reyna að standa vörð um réttindi þeirra í frumskógi heilbrigðiskerfisins og hafa þannig tekið að sér að vera málsvari sjúklinga með misgóðum árangri þegar erfiðleikar steðja að.

Heilbrigðisstefna til 2030

Fyrir rúmum þremur árum síðan var gefin út Heilbrigðisstefna til ársins 2030 á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem hefur verið til umfjöllunar víða í samfélaginu. Þar kemur fram að heilbrigðisþjónustan sé einn af hornsteinum samfélagsins og flestir ef ekki allir þurfi á einhverjum tímapunkti í lífi sínu á heilbrigðisþjónustu að halda. Eitt af því sem fjallað er um í þeirri áætlun eru gæði heilbrigðisþjónustunnar sem eru skilgreind út frá því að hversu miklu leyti þjónustan sem veitt er sé í samræmi við bestu þekkingu sem völ sé á. Öryggi í heilbrigðisþjónustu hefur verið skilgreint þannig að notandi hennar eigi ekki á hættu að hljóta skaða af meðferð sem er ætluð til að bæta heilsu hans eða lífsgæði. Gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu tengjast ótal þáttum hverju sinni og verða því að vera í stöðugri þróun.

Upplýsingar um gæði og árangur í heilbrigðisþjónustu eru mikilvægar á öllum þjónustustigum heilbrigðisþjónustunnar.

Eitt af því sem fjallað er um í Heilbrigðisstefnunni er virkni notenda. Þá er átt við þátttöku einstaklinga sjálfra í eigin heilbrigðisþjónustu, heilsulæsi og að notendakannanir séu lagðar reglulega fyrir og niðurstöðurnar notaðar í daglegt umbótastarf. Niðurstöður slíkra kannana þyrftu að vera sýnilegar og aðgengilegar öllum. Nú þremur árum síðar ber afar lítið á notendakönnunum í heilbrigðisþjónustu.

Embætti umboðsmanns sjúklinga

Fyrir Alþingi liggur þingsálykturnartillaga þar sem lagt er til að embætti umboðsmanns sjúklinga verði stofnað. Sú hugmynd er ekki ný af nálinni og hafa mörg félagasamtök komið fram með tillögu um stofnun embætti umboðsmann sjúklinga. Áður hefur verið lögð fram slík þingsályktunartillaga án árangurs. Óskað var eftir umsögn alls 36 aðila frá hinum ýmsu stofnunum og félagasamtökum en aðeins 11 sáu sér fært að svara kallinu. Hvorki, LSH, SAk né Læknafélag Íslands svöruðu þessu mikilvæga málefni. Í ljósi sögunnar telst því frekar ólíklegt að slík tillaga sem lögð er fram af minnihlutanum nái fram að ganga.

Hvað er til ráða?

Rannsóknir sýna að 10% sjúklinga á sjúkrahúsum á Vesturlöndum verða fyrir einhverskonar óhappi eða mistökum sem flokkast undir óvænt atvik. Gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu er í brennidepli víða um heim og þess vegna eru þessi hugtök nátengd þar sem öryggi þjónustu hefur áhrif á gæði hennar.

Það ætti því að vera ljóst að það sárlega vantar tengilið sem leiðbeinir sjúklingum og tryggir upplýsingaflæði til þeirra.

Eftir áratuga langt starf innan heilbrigðiskerfisins fannst okkur höfundunum, sem allir erum hjúkrunarfræðingar, því tímabært að gera eitthvað í málunum og höfum því stofnað almannaheillafélag sem hefur þau markmið að standa vörð um öryggi og réttindi sjúklinga og um leið efla vitund neytenda um réttarstöðu sína og samtakamátt. Félagið munu starfa á breiðum grunni. Við viljum tengja saman fleiri almannaheillafélög ásamt því að auka fræðslu og stuðning til almennings og ekki síst til heilbrigðisstarfsfólks. Það er ekki síður fórnarlömb í mistakamálum því sannarlega er aldrei ásetningur til staðar heldur röð atburða sem leiða til skaða. Við munum einnig leggja okkur fram um að taka þátt í umræðu í samfélaginu sem snýr að gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustu. Við viljum beita okkur fyrir lagabreytingum og/eða lagasetningum til varnar og hagsbóta fyrir bæði neytendur og veitendur heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Við teljum mikilvægt að skjólstæðingar fái verkfæri og stuðning til að vera virkir þátttakendur í þeirri heilbrigðisþjónustu sem veitt er á Íslandi.

Flest bendir til þess að álag á þjónustuna muni aukast á næstu árum vegna hækkandi lífaldurs þjóðarinnar og aukinnar tíðni lífsstílstengdra sjúkdóma. Af þeim ástæðum teljum við gríðarlega mikilvægt að hagsmunasamtök með það að leiðarljósi að auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu og um leið gera almenning virkari þátttakendur í eigin heilbrigðisþjónustu séu til staðar. Ávinningurinn af auknum gæðum og öryggi ætti að vera öllum ljós bæði þiggjendum og veitendum heilbrigðisþjónustunarinnar. Með góðri samvinnu og þátttöku allra aðila, sjúklinga, heilbrigðisstarfsfólks, stjórnvalda og viðurkenningu sjónarmiða allra eykst öryggismenning til hagsbóta fyrir alla aðila.

Málfríður Stefanía Þórðardóttir, Gyða Ölvisdóttir og Ásta Kristín Andrésdóttir eru hjúkrunarfræðingar og stofnendur Heilsuhags - hagsmunasamtaka notenda heilbrigðisþjónustu.

Hvar á að leggja Blöndulínu 3?

Karl Ingólfsson skrifar
23. apríl 2024 | kl. 18:00

Svona er síminn hannaður til að stela athygli okkar

Skúli Bragi Geirdal skrifar
22. apríl 2024 | kl. 08:20

Hvar hvílir Jónas frá Hrafnagili?

Sunna Vilborg Jónsdóttir skrifar
21. apríl 2024 | kl. 06:00

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Ásdís Rán skrifar
19. apríl 2024 | kl. 14:00

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15