Fara í efni
Fréttir

Grænland, Grindavík og sjávarútvegsskólinn

Háskólinn á Akureyri stendur fyrir fjölda viðburða á hverjum vetri og þannig vill til að á morgun, miðvikudaginn 4. febrúar, eru þrír áhugaverðir á dagskrá. Sá fyrsti, Lögfræðitorg þar sem fjallað verður um Grænland, hefst klukkan 8.30, næst á dagskrá verður opinn fundur þar sem sjónum verður beint að starfsemi Sjávarútvegsskóla GRÓ og í hádeginu verður annað Lögfræðitorg, þar sem Grindavík verður í brennidepli.


Undirtitillinn er: Nýlendustefna, ný-nýlendustefna og sjálfsákvörðunarréttur þjóða árið 2026.

„Grænlendingar eru viðurkenndir samkvæmt alþjóðarétti, sem og danskri löggjöf, sem þjóð með sjálfsákvörðunarrétt,“ segir í tilkynningu. „Á þessu Lögfræðitorgi verður meðal annars rætt um það hvaða afleiðingar núverandi óvissa og ólga kunni að hafa fyrir Ísland, og á hvaða hátt Ísland, sem nánasti samstarfsaðili Grænlands, Danmerkur, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins, geti og beri að bregðast við þróun mála í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og aðra mögulega hagsmuni.“

Lögfræðitorgið mun hefjast á stuttri framsögu þátttakenda sem eru Dr. Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við HÍ og fyrrverandi forseti Íslands, Dr. Rachael Lorna Johnstone, prófessor í lögfræði við Lagadeild HA og Dr. Bjarni Már Magnússon, lögmaður hjá Polestar Legal. Fundarstjóri verður prófessor Davíð Þór Björgvinsson, deildarforseti Lagadeildar og fyrrverandi dómari við Landsrétt og Mannréttindadómstól Evrópu.

  • Lögfræðitorgið hefst kl. 8.30 sem fyrr segir, og verður í stofu M102.

Árangur af tæplega þriggja áratuga starfi Sjávarútvegsskóla GRÓ verður til umfjöllunar á þessum opna viðburði, sem verður í stofu M101, hefst klukkan 10.00 og stendur til 11.15.

„Á viðburðinum munu nemendur sjálfir segja frá því hvernig námið hefur nýst þeim til að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum og uppbyggingu fiskeldis. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mun flytja þar ávarp og Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, bjóða gesti velkomna,“ segir í tilkynningu frá GRÓ.

  • Nemendur skólans eru allir sérfræðingar og tilnefndir til þátttöku vegna mikilvægra starfa sinna við að stuðla að sjálfbærum sjávarútvegi heima fyrir, en þeir starfa hjá samstarfsstofnunum GRÓ.
  • Alls hafa 512 nemendur útskrifast frá Sjávarútvegsskóla GRÓ, frá 68 löndum, frá stofnun skólans árið 1997.
  • Sjávarútvegsskólinn er einn fjögurra skóla sem starfræktir eru á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, en í gegnum þá er íslenskri sérþekkingu sem nýtist þróunarlöndunum til að stuðla að sjálfbærri þróun komið á framfæri.
  • Hinir skólarnir starfa á sviði jafnréttis, jarðhita og landgræðslu. Skólarnir hafa um áratugabil verið ein af lykilstoðum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.
  • Sjávarútvegsskólinn er hýstur í Hafrannsóknastofnun og eru þar kenndar fjórar sérfræðilínur, þ.e. um fiskveiðistjórnun, stofnstærðarmat, gæðastjórnun í fiskiðnaði og fiskeldi.
  • Sérfræðilína um fiskveiðistjórnun er kennd í Háskólanum á Akureyri
  • Meginávarp flytur Dr. Anthony Taabu-Munyaho hefur starfað við fiskrannsóknir í Úganda í um 25 ár, einkum við stofnstærðarmat í Viktoríuvatni sem er eitt stærsta vatn í heimi með ársafla um og yfir 1 milljón tonna.
  • Dr. Anthony Taabu-Munyaho Hann kom til Íslands á vegum Sjávarútvegsskólans árið 2004 og útskrifaðist með doktorspróf í fiskifræði frá Háskóla Íslands árið 2014 á styrkveitingu frá Sjávarútvegsskólanum.
  • Þá munu Dr. Olanrewaju Femi Olagunju frá Nígeríu, sem einnig hlaut doktorsstyrk í kjölfar þess að stunda nám við Sjávarútvegsskólann.
  • Tveir núverandi nemendur, Annakay Tishana Crawford frá Jamæku og Solomon Haeremai frá Papúa Nýju Gíneu taka þátt í pallborði sem Þór Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsskólans stýrir. Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ, mun loka viðburðinum og verður í kjölfarið boðið upp á léttar veitingar.

Hér eru hlekkir tengdir viðburðinum: Facebook viðburður | Skráning á viðburð (fyrir þau sem hyggjast mæta í raunheimum) | Streymi og upptaka


Í hádeginu fer fram seinna Lögfræðitorg dagsins þar sem Guðjón Bragason, lögfræðingur og sérfræðingur í stjórnsýslurétti, mun flytja erindið: Grindavík – áhrif óvissu á möguleika til endurreisnar.

Helsta verkefni Guðjóns frá því í nóvember 2023 hefur verið ráðgjöf til Grindavíkurbæjar en hann hefur einnig unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir fjölmörg sveitarfélög, ráðuneyti og ríkisstofnanir.

Lögfræðitorgið fer fram í stofu M101 og í streymi. Nánari upplýsingar hér.