Götuhjólreiðar, frjálsar, spyrna og bruni
Íþróttir dagsins eru á sömu nótum og í gær, golf, hjólreiðar, frjálsar íþróttir og bílalæti. Arctic Open golfmótinu lýkur í dag
Arctic Open meistarar krýndir í kvöld
Alþjóðlega miðnæturgolfmóti Golfklúbbs Akureyrar, Arctic Open, lýkur í dag með lokahófi þar sem verðlaun verða afhent.
- 20. júní
Lokahóf Arctic Open kl. 19.
Götuhjólreiðar í Svarfaðardal
Hjólreiðahátíðin heldur áfram í dag þegar Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum fer fram í Svarfaðardal. Upplýsingar um mótið má finna á vef Hjólreiðasambands Íslands og á Facebook-síðu Hjólreiðafélagsins.
Ræsing er við Víkurröst á Dalvík og fylgja keppendur rásbíl þaðan inn á hringinn sunnan megin í Svarfaðardal. Þaðan er hjólað réttsælis um hringinn. Keppni hefst kl. 10.
- Elite-flokkur karla - sex hringir - 140,4 km
- Elite-flokkur kvenna - fjórir hringir - 117 km
- U19 flokkur karla - fjórir hringir - 93 km
- U19 flokkur kvenna - þrír hringir - 70 km
Meistaramót 15-22 ára heldur áfram
Annar keppnisdagur Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 15-22 ára fer fram á Þórsvellinum um helgina. Mótið hófst í gær og er áætlað að því ljúki kl. 16 á morgun, sunnudag.
- Dagskrá mótsins á mótavef FRÍ - sjá hér.
Í dag er samkvæmt tímaseðli mótsins keppt í grindahlaupi, kringlukasti, langstökki, spretthlaupi, langhlaupum, spjótkasti og boðhlaupi.
Götuspyrna og „burn out“
Í dag er lokadagur Bíladaga Bílaklúbbs Akureyrar. Keppnisgreinar dagsins eru götuspyrna og „burn out“.
- 20. júní
Götuspyrna kl. 12:30-19:00
„Burn out“ kl. 20:30 - Dagskrá og upplýsingar um Bíladaga má finna á vef Bílaklúbbs Akureyrar og Facebook-síðu Bíladaga.
Siðareglur Bíladaga:
- Við göngum og keyrum vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
- Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
- Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
- Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
- Við berum virðingu fyrir náunganum og gerum Bíladaga frábæra.
- Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.