Fara í efni
Fréttir

Fyrsti tunglfiskur við Norðurland í 126 ár?

Hlín Garðarsdóttir skoðar tunglfiskinn í fjörunni við Leiruveg á laugardagskvöldið. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Dauður tunglfiskur fannst við Leiruveg á Akureyri á laugardagskvöldið og skv. skráðum tilfellum er þetta í fyrsta skipti í 126 ár sem þessi tegund sést við Norðurland. Raunar eru aðeins tvö eldri dæmi þess að tunglfiskur hafi fundist norðan 65. breiddargráðu hér við land, árin 1845 og 1900, og er þar um að ræða elstu skráðu tilfellin um tunglfiskreka, að því er fram kemur í ritrýndri grein í Tímariti Hins íslenskra náttúrufræðingafélags árið 2020.

Það var Hlín Garðarsdóttir sem fann tunglfiskinn í fjöru grjótgarðs sem skagar norður úr Leiruvegi, út í Pollinn. Hlín var í göngutúr þegar hún sá glitta í eitthvað ljóst í myrkrinu, taldi í fyrstu líklegt að þetta væri plast eða annars konar drasl sem rekið hefði á fjöru en forvitni var vakin og þegar hún kom nær blasti þessi furðulegi, næstum sporöskjulaga fiskur við. Tunglfiskur (Mola mola) er úthafsfiskur og útbreiddur í öllum heimshöfum. Hann hefur verið talinn flækingur á Íslandsmiðum, finnst nú orðið árlega en heldur sig í hlýrri sjó en er norðan við land.

Ekki er vitað hve tunglfiskurinn hafði legið lengi í flæðarmálinu þegar Hlín varð hans vör. Svo virtist sem búið væri að éta hluta fisksins en ekki gott að segja hvort fuglar áttu þar hlut að máli, selur sem þau Hlín urðu vör við á Pollinum spölkorn frá eða hvort skýringin sé einhver allt önnur.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

  • Grein Ólafs S. Ástþórssonar og Jónbjörns Pálssonar í Tímiriti Hins íslenska náttúrufræðifélags:

Tunglfiskur (Mola mola) á Íslandsmiðum í ljósi veðurfarsbreytinga