Fresta nýrri stöð – stækka í Sunnuhlíð

Byggingu annarrar heilsugæslustöðvar á Akureyri hefur verið frestað um fimm ár hið minnsta. Þessa ákvörðun tók framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) eftir samtöl við hagsmunaaðila og endurmat á forsendum, að því er fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni.
Í tilkynningu HSN segir að þjónustukönnun sem gerð var á meðal skjólstæðinga sýni að ánægja sé með þjónustuna og að starfsánægja hafi aukist mikið, sem sýni að núverandi umgjörð sem sköpuð hafi verið með nýrri og glæsilegri heilsugæslustöð í Sunnuhlíð, ásamt starfsemi á Hvannavöllum, hafi gefið mjög góða raun. „Það hefur ásamt öðru, gefið tilefni til að staldra við og endurmeta fyrri ákvörðun. Staðan verður endurmetin að fimm árum liðnum,“ segir einnig í tilkynningu HSN.
Stækkun í Sunnuhlíð liggur fyrir
Þá kemur fram að stækkun á húsnæði heilsugæslunnar í Sunnuhlíð um allt að 250 fermetra fyrir klíníska starfsemi liggi fyrir. HSN leigir að auki um 1.500 fermetra af húsnæði undir sálfélagslega þjónustu, heimahjúkrun, ME teymi og skrifstofustarfsemi á Akureyri. Unnið er að því í samstarfi við Akureyrarbæ að fllytja heimahjúkrun og heimaþjónustu Akureyrarbæjar í gott sameiginlegt húsnæði til að styðja enn frekar við árangursríkt samstarf og þjónustu. Sálfélagsleg þjónusta sem sinnir öllu Norðurlandi verður áfram í leiguhúsnæði við Hvannavelli, en einstaka starfsfólk áfram staðsett á öðrum starfsstöðvum HSN. Fram kemur í tilkynningunni að lögð verði áhersla á að auglýsa sem flest störf óstaðbundin á starfssvæðinu.
Betra flæði með faglegri þróun
Að lokum segir í tilkynningu HSN: „Mikil fagleg þróun hefur átt sér stað innan heilsugæslunnar á Akureyri, en innleiðing á teymisvinnu þar sem íbúum svæðisins er skipt upp í fjögur teymi hefur skapað betra flæði, aukið þverfaglegt samstarf og stuðlað að betri þjónustu. Þá hafa nýjar vinnuaðstæður og faglegt starf laðað að aukinn fjölda af nemum sem mikilvægt er að hafi bakland í öflugum hópi fagfólks. Jafnframt er starfsumhverfið í mikilli þróun, en nýlegar breytingar eins og styttri vinnuvika getur reynst áskorun þar sem fleiri eru fjarri á hverjum tíma og er því hagfelldara að hafa eininguna stærri til að vera betur í stakk búin að tryggja samfellu í þjónustu við skjólstæðinga.“
Að þessu sögðu telur HSN skynsamlegt að staldra við, styrkja núverandi faglega þróunarvinnu og þjónustu sem og stuðla að auknu jafnvægi í gæði þjónustunnar í stað þess að kljúfa í tvennt klíníska þjónustu á þessu stigi, segir einnig í tilkynningu HSN.