Jón Torfi hættur sem yfirlæknir hjá HSN
Jón Torfi Halldórsson, sem lengi hefur gegnt starfi yfirlæknis hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri, hefur látið af því starfi og mun sinna læknisstörfum hjá HSN austan Akureyrar. Valur Helgi Kristinsson hefur tímabundið tekið við stöðu yfirlæknis af Jóni Torfa.
Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN staðfesti í samtali við akureyri.net að Jón Torfi væri hættur sem yfirlæknir HSN á Akureyri og væri að flytja sig um set innan HSN. „Jón Torfi er hættur og ætlar að fara að stunda lækningar í Norður-Þingeyjarsýslunni,“ segir Jón Helgi og staðfesti jafnframt að Valur tæki við. „Valur Helgi er tekinn við, að minnsta kosti fram á haustmánuði,“ segir Jón Helgi.
Fyrir nokkrum árum voru Jón Torfi og Valur Helgi báðir yfirlæknar við heilsugæsluna á Akureyri en í kjölfar skipulagsbreytinga haustið 2023 var ákveðið að aðeins einn yfirlæknir yrði á Akureyri og var þeim báðum þá sagt upp störfum. Í kjölfarið var Jón Torfi ráðinn í stöðuna en Valur Helgi lét af störfum og réði sig til Heilsuverndar og hugðist sinna heimilislækningum áfram. Heilsuvernd fékk síðan ekki heimild yfirvalda til að sinna heimilislækningum á Akureyri frá starfsstöð sinni í Kópavogi. Valur Helgi tók til starfa hjá HSN á nýjan leik fyrir rúmu ári.