Skíðablíða og bílaröð niður fyrir Hálönd
Fjöldi fólks er á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli í dag enda aðstæður eins og best verður á kosið; gott færi í brekkunum, allar lyftur í gangi og veðrið dásamlegt, sól, logn og nokkurra stiga frost.
Ekki er nóg með að margir séu á skíðasvæðinu heldur er fjöldi fólks einnig á leiðinni þangað. Langt er síðan röð bíla á leið í fjallið hefur verið jafn löng; eins og sjá má á myndum Þorgeirs Baldurssonar, sem teknar voru um kl. 11 náði röðin niður fyrir frístundabyggðina Hálönd sem er miðju vegu milli efstu byggðar og skíðasvæðisins.
Auk heimamanna eru mjög margir gestir í bænum vegna vetrarfría í skólum á borgarhorninu. Skíðasvæðið var opnað kl. 10 í morgun lyftur verða í gangi til kl. 17. Opið verður á sama tíma á morgun, sunnudag.
Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að í gær hafi verið um 3.500 manns í fjallinu og hann reiknar með svipuðum fjölda í dag. „Á leiðinni upp eftir er bíll við bíl og stæðin okkar eru full. Bílafjöldinn er það sem erfiðast er við að eiga en allt gengur vel á svæðinu. Lyfturnar ganga fínt,“ segir hann við akureyri.net.
Einstaka sinnum hefur fólki verið gert kleift að leggja bílum sínum á svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg, nokkru neðan Hálanda, og boðið far þaðan með rútu upp að skíðasvæðinu. „Við gerðum það síðast fyrir tveimur árum ef ég man rétt en það var ekki mikill vilji til að nýta sér það. Flestir vilja frekar fara alla leið upp eftir á eigin bíl.“

