Einar Örn umdæmis- og flugvallarstjóri
Einar Örn Héðinsson hefur verið ráðinn flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli og umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi og þegar tekið til starfa. Einar er Akureyringur, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, með próf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands auk framhaldsnáms frá Danmarks Tekniske Universitet.
„Mikil uppbygging hefur verið á Akureyrarflugvelli síðustu ár með auknu millilandaflugi en flugvöllurinn er einn af fjórum alþjóðaflugvöllum landsins og varaflugvöllur fyrir Keflavík. Í umdæminu eru þrír aðrir flugvellir og átta lendingarstaðir sem umdæmisstjóri hefur yfirumsjón með,“ segir í tilkynningu á vef Isavia.
„Einar hefur góða reynslu af störfum við samgöngur eftir að hafa starfað hjá Flugmálastjórn Íslands og við flugmál hjá Samgöngustofu í rúma tvo áratugi, lengst af þar sem framkvæmdastjóri flugöryggissviðs. Einnig hefur hann unnið hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni ICAO og þekkir því vel til umhverfis flugs og flugvalla.“