Eigum við kannski að breyta þessu í heimili?
Þau ætluðu að byggja sér nýtt hús en enduðu á að breyta gömlum útihúsum í óvenjulegt heimili. Bryndís Óskarsdóttir og eiginmaður hennar, Ólafur Aðalgeirsson, hafa á undanförnum árum staðið í skemmtilegri uppbyggingu í landi Glæsibæjar í Hörgársveit. Bryndís segir hér frá verkefninu, erfiðum kaflaskilum þegar þau hættu í ferðaþjónusturekstri og því hvers vegna hún er alltaf tilbúin að takast á við næsta verkefni.
„Það hefur verið dásamlegt að vera hér frá fyrsta degi, okkur líður rosalega vel hérna. Það er einhver ótrúleg kyrrð og notalegheit hérna. Bæði er það staðsetningin hér við sjóinn og heldur rýmið innandyra líka ótrúlega vel utan um mann þó að það sé hátt til lofts,“ segir Dísa þar sem hún stendur í eldhúsinu á sínu óhefðbundna íbúðarhúsi en hefur undanfarið boðið fólki heim til sín á námskeið þar sem hún hefur verið að kenna því að búa til ýmislegt góðgæti í eldhúsinu sem tilvalið er til gjafa í kringum jólahátíðina. Margir koma þó ekki síður til að skoða þetta húsaverkefni þeirra hjóna betur, en þar sem nú er hlýlegt heimili voru áður útihús og hlaða. Sjá nánar á disaoskars.com

Hagabyggð í landi Glæsibæjar í Hörgársveit. Mynd: Þorgeir Baldursson
Hlaða sem varð höll
Heimili þeirra Dísu og Óla kallast í daglegu tali Höllin. Nafngiftin var upphaflega grín hjá þeim hjónum því hlaðan var sannarlega engin höll þegar þau hófust handa við að breyta henni í íbúðarhús árið 2022 en er það sannarlega í dag. Það er meira að segja töluverður hallarbragur á aðkomunni en súrheysturnarnir tveir gefa húsinu ákveðið hallaryfirbragð því á milli þeirra liggur brú sem þarf að ganga yfir til að komast að húsinu, eins og í köstulum til forna. En hvað varð til þess að hjónin fóru út í það verkefni að breyta hlöðu, súrheysturnum og útihúsum í landi Glæsibæjar í heimili í stað þess að byggja bara nýtt hús á landinu?

Efri myndin sýnir hvernig útihúsin litu út áður en framkvæmdir hófust en sú neðri sýnir aðkomuna að húsinu í dag.

Sagan byrjar eiginlega löngu fyrir árið 2017, en það var árið sem þau eignuðust jörðina. Þá voru þau í ferðaþjónusturekstri í Skjaldarvík, sem er í næsta nágrenni við Glæsibæ. Þau þekktu svæðið því vel eftir fjölmargar gönguferðir um Hálsaskóg og höfðu oft rætt hversu gaman væri að eignast þar land og byggja íbúðarhús. „Ég segi stundum að Óli hafi verið búinn að pissa utan í öll trén, hann langaði svo í þetta land,“ segir Dísa og hlær. Þegar tækifærið bauðst til að kaupa jörðina voru þau enn í fullum rekstri með ferðaþjónustu á Skjaldarvík, en sáu fyrir sér að byggja upp landið og koma sér þar fyrir í framtíðinni. „Ég var búin að velja mér þrjár lóðir hér hinum megin þar sem Hagabyggðin er núna, og einu sinni vorum við líka búin að láta teikna hús fyrir okkur og Óli var byrjaður að vinna við grunninn. Ég tók fyrstu skóflustunguna og allt,“ rifjar hún upp.
Jarðvegurinn reyndist erfiður viðureignar og einn daginn kom Óli heim til Dísu og sagði að þetta væri nánast óvinnandi vegur. „Ég sagði bara: Ókei, bíðum aðeins og hugsum þetta.“ Í millitíðinni kom tilboð í lóðina og þau seldu hana og teikningarnar með. Húsið var síðar byggt í svipaðri mynd á lóðinni og Dísa segir það hafa orðið glæsilegt. Þau völdu sér svo aðra lóð en þá kom upp hugmynd sem átti eftir að breyta öllu.

Fyrir og eftir. Á myndinni til hægri stendur Dísa á sama stað og á þeirri til vinstri. Myndir úr einkasafni.
Skapandi lausnir í óvenjulegu húsi
Dísa segir að þau hjónin hafi oft horft á útihúsin en þó aðallega til að gera úr þeim verkstæði og vinnuaðstöðu. Dag einn hringdi svo Óli í hana og bað hana að koma og kíkja aðeins á útihúsin. „Hann stóð hérna niðri og horfði á súrheysturnana og sagði: „Eigum við kannski bara að breyta þessu í heimili?““ rifjar Dísa upp. Svarið lét ekki á sér standa hjá Dísu. „Ég náttúrulega sagði, já! því ég var allan tímann til í það.“
Framkvæmdir hófust formlega 2022 og fjölskyldan flutti inn rétt fyrir jólin 2023 þrátt fyrir að framkvæmdum væri enn ólokið. Hún segir að verkefnið hafi í heildina reynt töluvert á enda þurfti oft að finna skapandi lausnir jafnóðum. „Það þurfti náttúrulega að leysa ansi margt sem kannski voru engar leiðbeiningar með. Til dæmis þegar verið var að klæða í kringum súrheysturnana og hækka þá,“ segir Bryndís og bætir við að stundum hafi smiðirnir hreinlega staðið ráðþrota og klórað sér í hausnum. „Þá sagði Óli : Byrjið bara og við finnum út úr þessu jafn óðum,“ segir Dísa og brosir og viðurkennir að þetta sé raunar viðhorf sem þau hafi lengi haft til framkvæmda og annarra verkefna, og það viðhorf hafi reynst þeim vel.

Horft yfir Hagabyggð í landi Glæsibæjar. Mynd: Þorgeir Baldursson
Hagabyggðin stækkar
Samhliða breytingunum á útihúsunum hafa þau líka unnið að uppbyggingu á landinu í Glæsibæ og það sé búið að vera langt og flókið ferli enda hafi margir komið að málum. Þegar þau keyptu jörðina var þar hefðbundinn sveitabær með túnum, skógi og kirkju en svæðið hefur smám saman verið að taka á sig aðra mynd því eins og staðan er núna hafa 70 íbúðir verið skipulagðar á svæðinu í svokallaðri Hagabyggð. Að sögn Dísu hafa lóðir selst vel enda er svæðið, sem áður var meira úti í sveit, orðið hluti af ört vaxandi byggð norðan Akureyrar. „Það er búið að færa miðbæinn fyrir okkur þarna í Norðurtorg,“ segir Dísa létt í bragði.
Samfélagið í hverfinu er einnig smám saman að mótast. Dísa segir fyrstu konurnar í hverfinu til að mynda hittast reglulega undir nafninu Hagadömur. Þá hafa íbúar í hverfinu líka fengið jólatré úr skóginum. „Þetta er frábær staður og það hefur verið alveg rosalega gaman að sjá þetta verða til. Ég fæ bara tár í augun þegar ég horfi á húsin sem voru ekki hér og voru ekki einu sinni hugmyndir að fyrir nokkrum árum.“

Hér stendur Óli á heyi í öðrum súrheysturninum en eins og sést á myndinni til hægri er nú baðherbergi í turninum. Mynd: úr einkasafni
Árin í Skjaldarvík ævintýri
Áður en þau hjónin hófu uppbygginguna í Glæsibæjarlandinu höfðu þau rekið ferðaþjónustu í Skjaldarvík í þrettán ár. Aðspurð hvað standi upp úr frá þeim tíma þarf Bryndís ekki langan umhugsunarfrest. „Allt fólkið sem við hittum og allt sem við lærðum. Og náttúrulega líka hvað við byggðum upp ótrúlega skemmtilegt konsept úr drasli. Þetta var elliheimili með grænum hurðum og línóleumdúk. En fólk kom þarna inn og upplifði sig á einhverju fimm stjörnu hóteli,“ segir Dísa og bætir við að það hafi ekki síst verið starfsfólkinu að þakka. „Okkur tókst að ala upp mjög gott starfsfólk sem gaf staðnum gott andrúmsloft. Margir þessir krakkar sem komu og unnu hjá okkur halda enn sambandi við okkur, sem er mjög gaman. Ég var nú bara síðast að hitta eina sem var hjá okkur í mörg ár í síðustu viku.“
Að sögn Dísu voru Skjaldarvíkurárin ógleymanlegt ævintýri, þótt þau hafi vissulega líka verið krefjandi, en á sama tíma og þau hjónin voru á kafi í ferðaþjónusturekstri voru þau einnig að ala upp þrjár dætur. Sumarið 2022 urðu hins vegar óvænt tímamót hjá þeim í kjölfar þess að þau náðu ekki áframhaldandi samningum við Akureyrarbæ um leigu á húsnæðinu. „Fyrirtækið okkar lenti í rekstrarerfiðleikum í kringum heimsfaraldurinn og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðum við ekki samningum við Akureyrarbæ um framhald,“ segir Dísa. Hún viðurkennir að málalokum hafi fylgt töluverð vonbrigði því þau höfðu lagt mikla vinnu í að byggja upp starfsemina á Skjaldarvík. „Það tók alveg tíma að vinna sig út úr þessu því okkur fannst við hafa gert svo góða hluti og alltaf staðið okkar plikt. En svona er bara lífið. Það gerist eitthvað og svo kemur næsti kafli, og maður á alltaf að vera tilbúinn í næsta kafla,“ segir hún og bætir við: „Af þessu öllu lærði ég að þó það fari ekki allt samkvæmt áætlun, þá þarf það ekki að koma í veg fyrir að eitthvað nýtt og spennandi taki við.“

Annar súrheysturninn hýsir baðherbergi hússins en hinn er eins og skúlptúr í stofunni. Mynd: SNÆ
Óhrædd við að prófa nýja hluti
Eftir þrettán ár í ferðaþjónustu, þar sem þau hjónin þurftu nánast alltaf að vera til taks, var það ný og óvenjuleg tilfinning að geta allt í einu farið að heiman án þess að hafa áhyggjur af því að síminn myndi hringja. Dísa segir að það hafi tekið tíma að venjast nýjum veruleika og vinda ofan af sér. Hún rifjar sérstaklega upp eina fyrstu hjólaferð þeirra hjóna eftir að rekstrinum lauk. „Við fórum í hjólaferð seinnipartinn og gátum endað ferðina á því að fá okkur drykk á einhverjum veitingastað niðri í bæ. Það var enginn að hringja í okkur! Það var mögnuð upplifun.“
Fyrstu mánuðina eftir lokunina á Skjaldarvík ætlaði Dísa að einbeita sér að netnámskeiðunum og njóta frelsisins. En eftir sjö mánuði fór hún að finna fyrir því að eitthvað vantaði. Hún segist hafa áttað sig á því að hún þurfti að finna að hennar væri þörf. Þá tók hún til sinna ráða og hafði samband við þrjú ferðaþjónustufyrirtæki á Akureyri til að kanna hvort það væri not fyrir hana. „Ég held að það hafi verið á sunnudegi sem ég sendi póstinn og ég var byrjuð á mánudegi.“ Í framhaldinu fór hún að starfa við leiðsögn og lét ekki þar við sitja því hún ákvað líka að taka meirapróf. „Ég er með 70 manna rútupróf,“ segir hún, eins og það sé sjálfsagðasti hlutur í heimi. Það er reyndar dæmigert fyrir Dísu, sem virðist alltaf óhrædd við að prófa eitthvað nýtt. „Ég hef alltaf verið svona. Þegar ég var krakki þá var ég ekki stoppuð. Ef ég kom með einhverja hugmynd, alveg sama hversu vitlaus hún var, þá var mér frekar leyft að reka mig á en að ég væri stoppuð.“

Séð frá efri hæðinni yfir stofuna.
Með bandamann á toppnum
Dísa er þekkt fyrir jákvæðni og mikla orku, eins og fylgjendur hennar á samfélagsmiðlum hafa séð, en þar er hún dugleg að sýna frá því sem hún er að brasa og ræða alls konar vangaveltur. Hún segir að þó að hún sýni yfirleitt björtu hliðarnar á samfélagsmiðlum þýði það ekki að lífið sé alltaf auðvelt. „Ég er alveg óþolandi jákvæð, en ég hryn líka alveg stundum,“ viðurkennir hún. Þegar á móti blæs segist hún fara niður í fjöru og ná sér í kraft úr sjónum. Eins segist hún vera með bandamann á toppnum, föður sinn Óskar Ásgeirsson sem lést árið 2007. Hann segist hún reglulega tala við og biðja um hjálp þegar á þarf að halda. Og faðir hennar er sannarlega með henni í liði, það hafi hún margoft fengið sannanir fyrir. Hún nefnir sem dæmi að einu sinni þegar álagið var sem mest í ferðaþjónustunni hafi hún alveg blokkerast og ekki getað munað lykilorð inn í tölvu sem hún notaði daglega. „Ég var í heilan dag að reyna að opna tölvuna mína af því að ég mundi ekki lykilorðið á tölvu sem ég opnaði dag eftir dag. Ég fékk algjört sjokk. Að lokum leitaði ég til pabba í huganum og sagði bara: „Pabbi minn, nennirðu plís?“ Þá hafi henni loks tekist að opna tölvuna og það fyrsta sem birtist á skjánum var gömul ljósmynd af föður hennar.
Annað dæmi um atvik þar sem hún hefur upplifað merki um nærveru hans var þegar hún sat úti í bíl mjög döpur eftir erfiðan dag en þá hafi hún beðið föður sinn um hjálp. Þegar hún kveikti á útvarpinu hafi lagið Ó, pabbi minn verið í útvarpinu. „Ég er með mann á toppnum, það er mjög gott að vita af því,“ segir hún og brosir. Hún segir að faðir sinn hafi verið félagslyndur maður sem talaði við alla. Sem unglingi hafi henni stundum þótt hann hallærislegur. „Hann var með hatt og talaði við alla og var ótrúlega mannblendinn. Maður náttúrulega skammaðist sín fyrir það á sínum tíma.“ Nú sjái hún hins vegar að hún sé býsna lík honum. „Já, svo er ég bara nákvæmlega eins,“ segir hún og hlær.

Margir fylgdust með framkvæmdunum hjá þeim Dísu og Óla í gegnum samfélagsmiðla en Dísa hefur verið dugleg að sýna og segja frá verkefninu. Nú býður hún fólki hins vegar heim til sín á námskeið. Sjá meiri upplýsingar um það inn á vefsíðunni disaoskars.com
Byggja upp fallega byggð
Þótt Dísa og Óli hafi komið sér vel fyrir á nýja heimilinu sitja þau ekki mikið á sófanum. Hugmyndirnar virðast nefnilega koma á færibandi og það eru alltaf einhver spennandi verkefni á borðinu sem þau eru að brasa í. Þó að hlaðan og súrheysturnarnir séu orðnir að heimili eru fleiri útihús á jörðinni sem bíða eftir nýjum tilgangi. Dísa viðurkennir alveg að það geti alveg verið áskorun að staldra við og njóta þess sem þegar hefur áunnist þegar hausinn vill strax fara í nýtt verkefni. Hún ítrekar þó að fólk njóti lífsins með ólíkum hætti, það þurfi ekki alltaf að gerast á sófanum eða í heita pottinum. Sjálf elskar hún að elda og bjóða fólki heim. Fyrir henni sé það ekki vinna eða fyrirhöfn heldur einmitt leið til að njóta. „Að standa hérna og vesenast í mat allan daginn og bjóða einhverjum heim, það er að njóta fyrir mig,“ segir Dísa.
Og þau hjónin eru hvergi nærri hætt. Draumurinn sé að halda áfram uppbyggingunni í Glæsibæjarlandi og sjá svæðið vaxa og dafna. „Það er náttúrulega stóra verkefnið okkar, að byggja hérna upp skemmtilega og fallega byggð. Við erum með stórar hugmyndir fyrir svæðið, en hlutirnir taka tíma og þetta þarf allt að gerast í takti og sátt við guð og menn,“ segir Dísa og slær þar með botninn í spjallið við eldhúsborðið í Höllinni.

Myndir: Þorgeir Baldursson
