Fara í efni
Mannlíf

Gómsæti hjá Dísu í óvenjulegu umhverfi

Dísa tekur á móti gestum á heimili sínu þar sem einu sinni var hlaða og útihús. Súrheysturnarnir gefa húsinu skemmtilegan stíl en annar þeirra er nýttur sem salerni. Mynd: SNÆ

Það er ekki á hverjum degi sem fólki býðst að fara á matargerðarnámskeið í gamalli hlöðu sem breytt hefur verið í glæsilegt heimili. Bryndís Óskarsdóttir, matartæknir, markþjálfi og grafískur hönnuður, býður einmitt upp á slíka upplifun á heimili sínu í Glæsibæ í Hörgársveit. Um leið og gestir njóta góðrar samveru í hennar eigin eldhúsi læra þeir að útbúa gómsætar matargjafir og pakka þeim fallega inn.

Námskeiðið nefnist „Gómsætar gjafir“ og er í raun endurvakning á hugmynd sem Bryndís, betur þekkt sem Dísa, fékk fyrir mörgum árum, þegar hún og eiginmaður hennar, Ólafur Aðalgeirsson, ráku ferðaþjónustu í Skjaldarvík. „Ég er með alveg bilandi áhuga á matargerð og þetta námskeið byrjaði upphaflega sem netnámskeið þegar ég var í ferðaþjónustunni,“ segir Dísa aðspurð hvernig hugmyndin að námskeiðinu kviknaði. „Undanfarið hef ég hins vegar fundið fyrir auknum áhuga fólks á að hittast meira og gera eitthvað saman, og þar sem ég er komin með þetta fallega rými núna þá ákvað ég bara að halda námskeiðið hér heima hjá mér.“ Staðsetningin eykur líka sannarlega á upplifun gesta því að sögn Dísu finnst mörgum gaman að koma inn á heimilið sem er nokkuð óhefðbundið. Sem dæmi þá er róla í eldhúsinu og salernin í öðrum súrheysturninum.

  • akureyri.net fjallar nánar um þetta áhugaverða húsaverkefni þeirra hjóna fljótlega en fjölmargir fylgdust með á samfélagsmiðlum þegar þau umbreyttu gömlum útihúsum í íbúðarhús.

.

Heimagert biscotti og fleira gott.  Dæmi um hvað Bryndís er að kenna fólki að gera á námskeiðunum heima hjá sér. Öllu er síðan fallega pakkað inn. 

Gjafir sem hægt er að gera á hverju ári

„Ég er búin að vera með ellefu manns hérna á þessum hefðbundnu námskeiðum en get vel tekið fleiri. Ofninn ræður samt ekki við hvað sem er. Þetta er bara heimili,“ segir Dísa hlæjandi. Að hennar sögn eru námskeiðin ætluð bæði einstaklingum og hópum. Sumir koma einir, aðrir með vinum, og þá hafa mæðgur líka verið duglegar að skrá sig. Dísa leggur áherslu á að þótt námskeiðið tengist jólunum sé ekki um hefðbundið konfektgerðarnámskeið að ræða. „Við erum líka að búa til eitthvað sem er ekki einu sinni sætt. Við erum t.d. að búa til kex, möndlur og hrökkbrauð,“ segir hún. Þátttakendur vinna saman að matargerðinni, fá ýmis ráð og góðar hugmyndir og smakka að sjálfsögðu á afrakstrinum. En námskeiðinu lýkur ekki þegar maturinn er tilbúinn. „Þegar við erum búin að búa til vöruna þá förum við og pökkum þessu öllu inn. Fólkið fer síðan heim með það sem það var að búa til og fær svo uppskriftirnar og grafíkina senda til sín í tölvupósti þannig að það getur haldið áfram heima,“ segir Dísa og bætir við að þetta sé eitt af því sem geri námskeiðið sérstakt. Fólk lærir ekki aðeins að útbúa gjafirnar heldur fær hugmyndir og efnivið til að halda áfram að búa þær til heima ár eftir ár.

Ný notkun á gömlum útihúsum.  Þar sem áður var hlaða er nú fallegt og fullbúið eldhús. Mynd: SNÆ

Nýtni rauði þráðurinn

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Dísa býður fólki heim til sín á námskeið. Í fyrravetur hélt hún námskeið undir yfirskriftinni ChatGPT í eldhúsinu, þar sem hún kenndi fólki að nýta gervigreind við matargerð, skipulagningu og matarinnkaup. „Ég var sjálf að prófa mig áfram með gervigreindina í eldhúsinu og fannst það bara algjör snilld. Ég sparaði yfir hundrað þúsund í matarinnkaup á einum mánuði og hugsaði að ég þyrfti að sýna öðrum hvað þetta væri sniðugt og kenna fólki hvernig nýta mætti matinn í ísskápnum betur.“

Nýtni hefur raunar lengi verið rauður þráður í því sem Dísa tekur sér fyrir hendur. Hún hefur um árabil miðlað hugmyndum um matargerð, endurnýtingu og heimilishald, meðal annars í gegnum netnámskeið og áskriftarklúbb sem hún hefur haldið úti í um sjö ár.

Við komum hérna saman og eigum notalega stund þar sem við búum til eitthvað gott og pökkum því svo inn. Fólki finnst þetta æðislega gaman og svo getur það farið heim og gert þetta með sinni fjölskyldu.

Róla í eldhúsinu! Já því ekki það. Á heimili Dísu er ýmislegt sem kemur á óvart. 

Samvera alltaf besta gjöfin

Þótt námskeiðið „Gómsætar gjafir“ tengist jólunum er Dísa langt frá því að vera hrifin af öllu því sem fylgir nútímajólahaldi. Hún hefur til að mynda sterkar skoðanir á gjafakaupum og þeirri neyslu sem hún telur hafa færst í aukana á þessum tíma. „Mér finnst þetta bara hræðilegt,“ segir hún þegar talið berst að kaupæðinu. Hún segist alls ekki vera á móti því að gefa gjafir, sérstaklega ekki börnum, eða að gleðja fólk með einhverju sem það langar raunverulega í, en henni þykir lítið til þess koma að fólk kaupi gjafir af skyldurækni, án þess að vita hvort viðtakandinn hafi nokkur not fyrir þær.

Sjálf reynir Dísa að finna einfaldar og persónulegar leiðir til að gleðja fólkið sitt og hún bendir á að góðar gjafir þurfi ekki alltaf að vera nýjar. Í fyrra bjó hún til að mynda til jóladagatal handa barnabarninu sínu. Í stað þess að kaupa 24 litlar gjafir fór hún í nytjaverslun og keypti notað púsluspil. Síðan skipti hún púslinu niður í 24 litla strigapoka. „Sú litla opnaði einn poka á hverjum morgni og þurfti að reyna að koma púslinu saman allan mánuðinn og nú vill hún fá svona dagatal aftur,“ segir Dísa, ánægð með það hversu vel tókst til. Samvera er að hennar mati alltaf besta gjöfin og mun dýrmætari en einhver hlutur sem endar kannski bara inni í skáp. Þá segir Dísa að eitthvað matarkyns sé alltaf góð gjafahugmynd, enda er það gjöf sem fólk situr ekki uppi með heldur gjöf sem fólk nýtur og eyðist. Og það er einmitt hugsunin á bak við Gómsætar gjafir. „Við komum hérna saman og eigum notalega stund þar sem við búum til eitthvað gott og pökkum því svo inn. Fólki finnst þetta æðislega gaman og svo getur það farið heim og gert þetta með sinni fjölskyldu.“

Séð inn í annan súrheysturninn en þar er byrjað á fordrykk áður en gestir hella sér í matargerð í eldhúsinu. 

Jólahefðum má breyta

Talið berst nánar að jólahefðum og þeirri pressu sem margir upplifa í kringum jólin, bæði vegna gjafakaupa og fjölskylduboða. Dísa hvetur fólk til þess að ræða þessi mál opinskátt innan fjölskyldunnar en hennar upplifun er sú að margir haldi áfram að standa fyrir stórum veislum af gömlum vana, þótt þeir hafi hvorki tíma né löngun til þess. „Segjum það sem okkur finnst, því það er svo oft þannig, held ég, að það verður einhver bara dauðfeginn ef þú segir að þú nennir ekki að halda áfram að halda þessa veislu.“

Þá sé ekkert sem segi að allar fjölskyldusamkomur þurfi að fara fram á örfáum dögum yfir hátíðarnar. Hún nefnir sem dæmi að vel sé hægt að breyta hefðum og breyta boði sem alltaf hafi verið haldið á annan í jólum yfir í grjónagraut um miðjan janúar. Sjálf segist hún þó elska margar jólahefðir og nefnir sérstaklega laufabrauðsgerðina. „Mér finnst alveg ómissandi að gera laufabrauð. En það er líka öðruvísi. Þá máttu bara vera á gallabuxum og það er ekkert vesen. Og ef þú kemst ekki þá er enginn sár,“ segir Dísa og bætir við að mikilvægt sé að hefðirnar séu til gleði en verði ekki íþyngjandi.