Fara í efni
Fréttir

EasyJet bætir mánuði við Manchester

Mynd: Þórhallur Jónsson.

Flugfélagið easyJet mun fljúga milli Akureyrar og Manchester út aprílmánuð á næsta ári en áður gerði áætlun félagsins ráð fyrir því að síðasta flugið yrði 26. mars. Þetta eru góðar fréttir fyrir íbúa á Norður- og Austurlandi, sem geta þá valið um áætlunarflug til Englands fjóra daga í viku einum mánuði lengur en búist var við.

Lundúnaflugið hófst fyrr en árið áður, fyrsta flugið var þann 3. október og skýringin sögð sú að áætlunarflugið milli Bretlandseyja og Akureyrar hefði notið vaxandi vinsælda. Síðasta ferðin til og frá Lundúnum verður þann 24. apríl, skv. núgildandi áætlun, en flogið er þangað á þriðjudögum og laugardögum.

Þegar easyJet gaf út flugáætlun sína milli Akureyrar og Manchester var áformað að fljúga á föstudögum og mánudögum frá 13. nóvember til 26. mars, sem var álíka langt tímabil og árið áður.

Áhuginn virðist því enn hafa aukist, fyrst flugfélagið hefur ákveðið að lengja tímabilið sem flogið er til og frá Manchester um fimm vikur og síðasta flugið til og frá borginni verður þann 30. apríl. Þetta þýðir að áætlunarflug félagsins milli Akureyrar og Bretlandseyja stendur yfir í fulla sjö mánuði samfleytt í þessari lotu og líklegt er að margir munu vonast til að þetta tímabil haldi áfram að lengjast.