Fara í efni
Fréttir

Góð sætanýting í flugi til Kaupmannahafnar

Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður rifjaði í dag upp í pistli á Facebook að „beint áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar á sér lengri sögu en margir gera sér grein fyrir,“ eins og hann orðaði það. 
 
Tilefnið var tilkynning Icelandair um nýja flugleið í áætlunarflugi næsta vetur – frá Akureyri til Tenerife á Kanaríeyjum. Njáll Trausti varð fyrir vonbrigðum; hefði óskað sér að  tilkynnt hefði verið um að Icelandair hygðist hefja flug frá Akureyrarflugvelli til Kaupmannahafnar. „Það hefði haft miklu meiri áhrif í þá vera að styrkja byggðina fyrir norðan og austan,“ skrifaði hann og rifjaði upp söguna.
 
 
Peter Grönvold Samuelsen, stjórnarformaður Air Greenland, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri klippa á borða og opna með táknrænum hætti nýja flugleið milli Íslands og Danmerkur 28. apríl 2003.  Mynd: Skapti Hallgrímsson
  • Njáll Trausti skrifaði eftirfarandi um beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar:
 
Air Greenland hóf flug á leiðinni vorið 2003 og flaug tvisvar í viku fram í desember, um átta mánaða skeið.
 
Iceland Express tók síðan upp beint sumarflug árið 2006 og flaug á leiðinni í nokkur sumur, síðast árið 2012.
 
Tíu árum síðar, 2. júní 2022, fór Niceair í sitt fyrsta flug frá Akureyri. Áfangastaðurinn var Kaupmannahöfn. Þar var komið flugfélag með heimahöfn á Akureyri og metnað til að halda úti millilandaflugi árið um kring. Félagið flaug til Kaupmannahafnar þar til það stöðvaði starfsemi sína í apríl 2023.
 
 
Birgir Jónsson klippir á borða í flugstöðinni á Akureyri 31. maí árið 2006. Áætlunarflug Icelandair Express milli Akureyrar og Kaupmannahafnar var hafið. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Allt þetta flug gekk ljómandi vel og sætanýting góð. Air Greenland flugið féll niður vegna óánægju íbúa á Grænlandi með að flugfarið var lægra frá Akureyri til Kaupmannahafnar. Málið varð að pólitísku hitamáli á Grænlandi. Heimastjórnin skipti um tvo stjórnarmenn í stjórn Air Greenland. Í framhaldinu felldi stjórnin niður flugið með fjórum atkvæðum gegn þremur í nóvember 2003, fluginu var hætt nokkrum vikum síðar í desember það ár. Forstjóri Air Greenland og allir fjórir framkvæmdastjórar félagsins vildu halda fluginu áfram, þrátt fyrir það var ákvörðun stjórnarinnar að fella flugleiðina á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar niður.
 
Iceland Express flaug yfir sumarið á árunum 2006 - 2012 á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og gekk það flug vel og nýtingin góð. Við þekkjum það líka að sætanýting Niceair frá Akureyri til Kaupmannahafnar var líka mjög góð.
 
 
Akureyrarflugvöllur 2. júní 2022. Fyrsta flug Niceair til Kaupmannahafnar; Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Niceair, á milli Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra Isavia Innanlandsflugvalla, til vinstri, og Hjördísar Þórhallsdóttur, þáverandi flugvallarstjóra. Mynd: Þórhallur Jónsson