Fara í efni
Fréttir

Bretar segja Niceair án allra réttinda

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Niceair hefur hvorki íslenskt né breskt flugrekstrarleyfi og uppfyllir því ekki skilyrði til að fá leyfi til að starfrækja áætlunarflug samkvæmt loftferðasamningi milli Bretlands og Íslands. Þetta er haft eftir yfirmanni fjölmiðla- og samskiptadeildar bresku flugmálastjórnarinnar, CAA, á vef Fréttablaðsins.

Áætlunarferðir Niceair milli Akureyrar og London liggja niðri. „Breska flugmálastjórnin gaf 26. maí út leyfi vegna flugsins til flugfélagsins Hi Fly Ltd. of Malta sem flýgur fyrir Niceair. Eleanor Crabb, fjölmiðlafulltrúi hjá CAA, bendir í samtali við Fréttablaðið á að leyfi Hi Fly frá 26. maí nái aðeins til leiguflugs þannig að farmiðar séu ekki seldir beint til almennings heldur í gegn um leyfishafa,“ segir í blaðinu.

Þar segir ennfremur:

„Þótt bresk og íslensk yfirvöld geti leyft leiguflug til skamms tíma munu þau tryggja að með því verði ekki grafið óbeint undan loftferðasamningnum. CAA greip því til þess að afturkalla þetta leyfi þegar eðli starfseminnar; áætlunarflug fremur en leiguflug, og hlutverk Niceair, sem hefur engin tilskilin leyfi eins og er, – varð ljóst,“ útskýrir Crabb.

„Niceair hafði ekki samband við Flugmálastjórn Bretlands í aðdragand flugs félagsins 3. júní. CAA er í sambandi við yfirvöld á Íslandi í tengslum við þetta mál.“

Nánar hér á vef Fréttablaðsins