Fara í efni
Íþróttir

Bleikir Víkingar bundu enda á sigurgöngu SR

Það voru ekki aðeins útileikmenn SA Víkinga sem voru í stuði á svellinu í gær. Jakob Jóhannesson lokaði markinu og hélt því hreinu. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Bleikir og baráttuglaðir SA Víkingar bundu enda á rúmlega tíu mánaða sigurgöngu Íslandsmeistaranna í liði Skautafélagi Reykjavíkur með glæsilegum sigri í Skautahöllinni á Akureyri í gær. Lokatölur urðu 6-0.

Mörk SA víkinga í bleikum treyjum urðu sex þegar upp var staðið á meðan Jakob Jóhannesson, markvörður SA, hleypti engu í gegn. Hreint mark, sjö hundruð manns í Skautahöllinni, frábær stemning og ekki aðeins þrjú stig í pokann heldur verulegar fjárhæðir í styrk til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Sigurinn var sætur þó undirtónn leiksins hafi auðvitað verið að lífið er meira en íþróttir.

Ekki bara bleikar treyjur heldur líka bleikar legghlífar og bleikar reimar í skautunum. Jóhann Már Leifsson, fyrirliði SA Víkinga. Treyja merkt honum var á meðal vinninga. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Leikurinn var svokallaður hundrað krónu leikur, styrktarleikur þar sem áhorfendum gafst kostur á frjálsum framlögum í sjóð sem rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Að auki var bæði happdrætti og keppni í pökkakasti til ágóða fyrir KAON. SA Víkingar léku í bleikum treyjum með bleikri slaufu í hjartastað, og reyndar einnig með bleikar legghlífar og bleikar reimar á skautunum. Í happdrættinu og pökkakastinu voru tvær bleikar treyjur á meðal verðlauna, mætti kalla þær goðsagnatreyjur. Önnur var nr. 9 merkt „Smiley“ og hin nr. 10 merkt „Leifsson“.

Sarah Smiley hefur þjálfað þá næstum alla

Á Facebook-síðu íshokkídeildar SA er áhugaverð upptalning, svar við spurningunni: „Af hverju Smiley?“ Þar kemur meðal annars fram að Sarah Smiley hefur þjálfað alla núverandi leikmenn SA Víkinga nema einn, sem er væntanlega nýi erlendi leikmaðurinn, Daniil Fursa. Svona hljómar svarið við: „Af hverju Smiley?“

Sarah Smiley og Jóhann Már Leifsson. Heppnir áhorfendur á leik gærdagsins fóru heim með þessar treyjur. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

„Fáir hafa gert jafn mikið fyrir Skautafélag Akureyrar og íslenskt íshokkí og Sarah. Hún kom frá Kanada til Akureyrar árið 2006 og hefur síðan verið einn af máttarstólpum íþróttarinnar hér á landi:

  • Lék um árabil með SA og íslenska kvennalandsliðinu á heimsmeistaramótum.
  • Var valin íshokkíkona ársins 2011.
  • Þjálfaði kvennalandsliðið og U18-landslið kvenna.
  • Varð fyrsta konan til að þjálfa karlalið í íshokkí á Íslandi, þegar hún tók við meistaraflokki karla hjá SA.
  • Hefur þjálfað yngri flokka SA um árabil og átt stóran þátt í uppbyggingu kvennahokkís á Íslandi.
  • Sarah hefur þjálfað alla leikmenn SA Víkinga nema einn og það sama á við um nokkra leikmenn SR. Það er því vel við hæfi að treyjan hennar sé dregin út einmitt á þessum leik.“

En snúum okkur þá að leiknum sjálfum. Hann var hin besta skemmtun, að minnsta kosti fyrir Akureyringa. Klárlega hefur fólkið sem rekur Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis einnig brosað breitt, eins og stuðningsmenn SA Víkinga.

Fyrsta mark eftir 72 sekúndur

Það tók leikmenn SA ekki langan tíma að opna markareikninginn. Eftir rúmlega mínútu leik náðu þeir forystunni þegar Birkir Rafn Einisson, nýkominn aftur í raðir Akureyringa eftir dvöl syðra og erlendis, skoraði af stuttu færi eftir undirbúning Unnars Hafbergs Rúnarssonar. Ormur Jónsson jók forystuna í 2-0 um miðjan leikhlutann með góðu skoti úr einum krulluhringnum vinstra megin, eftir sendingu frá nýja (og eina) erlenda leikmanni liðsins, Daniil Fursa. 

Ormur Jónsson skoraði eitt af sex mörkum SA Víkinga. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Bleikir Víkingar voru frískir og fjörugir, ógnuðu oft marki gestanna og það bar enn og aftur árangur um miðjan annan leikhluta þegar Hafþór Andri Sigrúnarson skoraði þriðja mark SA.

Ekkert gefið eftir, 21 sekúnda á milli marka

Snemma í þriðja leikhluta kom fjórða markið. Daniil Fursa, eistnestkur landsliðsiðsmaður sem var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið, komst þá skyndilega einn inn fyrir vörn SA eftir sendingu frá Jóhanni Má Leifssyni og skoraði með skemmtilegum hætti. Daniil gæti átt eftir að reynast hvalreki fyrir Akureyringa.

Nýr erlendur leikmaður SA Víkinga, eistneski landsliðsmaðurinn Daniil Fursa, lofar góðu. Hann skoraði eitt mark og átti tvær stoðsendingar í leiknum. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Reykvíkingar áttu fá svör við bleikum og baráttuglöðum Víkingum og eftir fimmta markið, sem Unnar Hafberg Rúnarsson skoraði aðeins 21 sekúndu eftir að leikur hófst að nýju eftir fjórða markið, ákvað þjálfarinn að skipta út markmanninum, setti Ævar Björnsson inn í stað Jóhanns Björgvins.

Hlutirnir geta verið fljótir að breytast í íshokkí og forskot stundum fljótt að hverfa. Það var þó eiginlega aldrei í kortunum í leik gærdagsins. SA Víkingar voru áfram mun beittari á meðan gestirnir komust lítt áleiðis og aldrei framhjá Jakobi í marki SA. Sjötta markið kom svo þegar líða tók á lokaþriðjunginn. Unnar Hafberg Rúnarsson átti þá gott skot fyrir utan upp í markhornið. Þá voru enn rúmar sex mínútur til leiksloka og að sjálfsögðu barist allt til enda til að halda markinu hreinu. Sú varð líka niðurstaðan.

Stemningin á leiknum var frábær, margir áhorfendur sem mættu í bleiku í tilefni dagsins og samtals rétt rúmlega 700 manns sem lögðu leið sína í Skautahöllina. 

SA - SR 6-0 (2-0, 1-0, 3-0)

Helstu tölur úr leiknum:

SA

Mörk/stoðsendingar: Unnar Hafberg Rúnarsson 2/1, Daniil Fursa 1/2, Birkir Rafn Einisson 1/1, Hafþór Andri Sigrúnarson 1/0, Ormur Jónsson 1/0, Heiðar Gauti Jóhannsson 0/3, Jóhann Már Leifsson 0/2.
Varin skot: Jakob Jóhannesson 25 skot af 25 (100%).
Refsingar: 6 mínútur.

SR

Mörk/stoðsendingar: Engin.
Varin skot: Jóhann Björgvin Ragnarsson 17 af 22 (77,27%), Ævar Björnsson 11 af 12 (91,67%).
Refsingar: 8 mínútur.

Leikskýrslan

Staðan í Toppdeild karla

SA tyllti sér á topp Toppdeildarinnar með sigrinum, er með 12 stig að loknum sex leikjum. SR er með stigi minna, en hefur leikið einum leik færra. Þessi sömu lið mætast svo í Skautahöllinni í Reykjavík á föstudag, en þá er komið að svokallaðri Ofurhelgi þegar öll þrjú liðin mætast einu sinni frá föstudegi fram á sunnudag.

Næst:

  • Föstudagur 23. október
    Skautahöllin í Reykjavík kl. 19:45
    SR - SA

Fyrir þau sem ekki komust á hokkíleikinn, en vilja samt sem áður taka þátt í söfnunarátakinu er það auðvitað enn hægt, eins og reikningsupplýsingarnar hér að ofan sýna.

Rakel Hinriksdóttir mætti með myndavélina á leikinn. Hluta af afrakstrinum má sjá í albúminu hér að neðan.