Fara í efni
Íþróttir

Sigur og tap hjá SA – Langefstar í deild

Leikmenn SA fagna í leik á Akureyri fyrr í mánuðinum. Myndin er fengin af Facebook-síðu íshokkídeildar SA.

Kvennalið SA í íshokkí vann öruggan sigur í fyrri viðureign liðsins á útivelli í Toppdeildinni gegn Fjölni á föstudagskvöld, en SA-konur máttu játa sig sigraðar eftir framlengingu og vítakeppni í þeim seinni, sem fram fór í gær. Fjögur stig heim úr tveggja leikja helgarferð suður og SA er enn með góða forystu á toppi Toppdeildar kvenna, er með 18 stig úr sjö leikjum.

SA vann fyrri leikinn, sem fram fór á föstudagskvöld, nokkuð örugglega. Eftir markalausa fyrstu lotuna komu þær Herborg Rut Geirsdóttir og Sólrún Assa Arnardóttir SA í tveggja marka forystu í annarri lotunni. Guðrún Ásta Valentine bætti við þriðja markinu snemma í þriðju lotunni og Sólrún Assa skoraði sitt annað mark og fjórða mark SA þegar um sjö mínútur voru til leiksloka. 

Eins og glögglega má sjá á tölfræði markvarðanna vöru SA-konur mun aðgangsharðari í sókninni, áttu 57 skot á mark á móti 19 skotum Fjölnis. 

Fjölnir

Mörk/stoðsendingar: Engin.
Varin skot: Cassandra Goyotte 53 af 57 (93%).
Refsingar: 2 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Sólrún Assa Arnardóttir 2/0, Guðrún Ásta Valentine 1/1, Herborg Rut Geirsdóttir 1/0, Silvía Rán Björgvinsdóttir 0/2, Sunna Björgvinsdóttir 0/2, Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir 0/1.
Varin skot: Shawlee Gaudreault 19 af 19 (100%).
Refsingar: 8 mínútur.

Framlengt og vítakeppni í seinni leiknum

Fjölnir náði forystunni í fyrstu lotunni í seinni leiknum, en SA-konur svöruðu með þremur mörkum. Laura-Ann Murphy skoraði fyrir Fjölni, Guðrún Ásta Valentine jafnaði fyrir SA, Silvía Rán Björgvinsdóttir kom SA í 2-1 og Kolbrún María Garðarsdóttir skoraði þriðja markið á lokamínútu fyrstu lotunnar. Önnur lotan var tíðindalítil þó SA-konur hafi verið ágengari við markið en gestgjafarnir.

Leikurinn jafnaðist nokkuð í þriðju lotunni, en þá voru það heimakonur í Fjölni sem nýttu færin og knúðu fram framlengingu, Laura-Ann Murphy skoraði sitt annað mark og Elísa Dís Sigfinnsdóttir jafnaði í 3-3 um miðja lotuna.

Ekkert var skorað í framlengingunni og því gripið til vítakeppni. Þar skoruðu Fjölniskonur úr þremur vítum, en SA úr tveimur og aukastigið varð því eftir í Egilshöllinni. Kornungur markvörður SA, Marey Viðja Sigurðardóttir varði tvö víti, en Cassandra Goyotte varði þrjú víti í marki Fjölnis.

Fjölnir

Mörk/stoðsendingar: Laura-Ann Murphy 2/1, Elísa Dís Sigfinnsdóttir 1/0, Sigrún Agatha Árnadóttir 0/2.
Varin skot: Cassandra Goyotte 39 af 42 (92,9%).
Refsingar: 8 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Guðrún Ásta Valentine 1/0, Kolbrún María Garðarsdóttir 1/0, Silvía Rán Björgvinsdóttir 1/0, Herborg Rut Geirsdóttir 0/1, Magdalena Sulova 0/1, Sunna Björgvinsdóttir 0/1.
Varin skot: Marey Viðja Sigurðardóttir 22 af 25 (88%).
Refsingar: 8 mínútur.

Lið SA er með örugga forystu á toppi deildarinnar, með 18 stig úr sjö leikjum. SR hefur fimm stig úr sex leikjum og Fjölnir fjögur stig úr fimm leikjum.

Næst:

  • Skautahöllin á Akureyri
    Laugardagur 12. desember kl. 16:45
    SA - SR