Björgvin Birgisson fæddist á Akureyri 9. apríl 1964. Hann lést á heimili sínu 13. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Birgir Valdemarsson, f. 1941, og Kolbrún Theodórsdóttir, f. 1945. Systur Björgvins eru Þóra Guðný, f. 1967 og Harpa, f. 1973.
Eiginkona Björgvins er Gunnhildur Einarsdóttir. Börn þeirra eru þrjú: Lára Jóna, f. 1985, Einar Birgir, f. 1988, og Hákon Þór, f. 1992. Lára á dótturina Amínu með Younas, og Einar á börnin Teodor og Elenu með Madalinu.
Björgvin ólst upp í Glerárhverfi á Akureyri og gekk í Glerárskóla. Að loknu námi við Stýrimannaskólann á Dalvík öðlaðist hann skipstjórnarréttindi. Hann starfaði lengst af til sjós og var skipstjóri á uppsjávarskipinu Hákoni.
Björgvin hafði mikinn áhuga á útivist. Hann naut þess að ferðast um landið með fjölskyldu sinni og stunda veiðar og hjólreiðar með vinum sínum. Hann var kappsamur að eðlisfari og góð aflabrögð voru honum ekki síður hugleikin í leik en í starfi.
Útför hans fer fram frá Glerárkirkju í dag, 27. október kl. 13.