Björgvin Birgisson
Ég var ekki gamall þegar ég kynntist Björgvini Birgissyni. Sennilega verið um níu eða tíu ára. Við vorum jafnaldrar, þó í sitt hvorum bekknum í Glerárskólanum. Bjöggi, eins og hann var oftast kallaður, var stór hvernig sem á það var litið; í stærra lagi af barni af vera, aðallega á þverveginn, gat verið stór í kjaftinum, stór vinur þegar á reyndi, stórhuga og tók hann ákvarðanir sem voru í stærra lagi, þó svo að hann væri ungur að árum. Þau voru ófá uppátækin sem við réðumst í og mörg þeirra hættuspil hið mesta, jafnvel lífshættuleg. Við vorum svolitlir landkönnuðir í okkur báðir tveir og þekktum hvern krók og kima í Glerárgili, Sílabás og Sandgerðisbót, og allt þar á milli. Klettar voru klifnir, fjörur rannsakaðar í krók og kima og Gleráin vaðin í tíma og ótíma og í hvaða veðrum sem er. Það var einna helst að við komum ekki nálægt henni þegar hún tók litum og vatn hennar varð gult, rautt eða grænt, vegna þeirra spilliefna sem þótti svo sjálfsagt að losa í ána frá verksmiðjunum á þessum tíma.
Þessar ævintýraferðir tóku á sig aðra mynd þegar við fórum í skátana. Bjöggi varð fyrri til og dró mig síðan í þennan ágæta félagsskap. Við fórum margar ánægjulegar ferðir með skátunum. Oftast í Fálkafell, en líka í Lamba og tjald- og snjóhúsaútilegur. Eitt sinn var hringt í okkur á jóladag og þeirri hugmynd skellt framan í okkur stuttu eftir að hangikjötið var búið að koma sér fyrir í maga, að sniðugt væri að fara í Lamba um kvöldið. Það yrði tunglbjart allt kvöldið og langt fram á nótt. Við drifum okkur af stað og hittumst við öskuhaugana gömlu um níuleytið um kvöldið. Það var tunglbjart – mikið rétt, en það entist ekki lengi. Um ellefuleytið kvaddi máninn okkur og við þreifuðum okkur áfram í myrkrinu til fimm um morguninn, þegar við loksins römbuðum á þennan litla sex koju fjallakofa sem kúrði í víðerninu innst í Glerárdal. Þetta var fimm nátta ferð og ein sú besta sem ég hef farið í. Ég nefni hér að ofan að hann hafi verið í stærra lagi á þverveginn á þessum árum, en það aftraði honum ekki hið minnsta. Hann var óvenju orkumikill og þrautseigur. Þó svo að hann hafi borið meiri líkamlegar byrðar en aðrir strákar á þessum árum, dróst hann aldrei aftur úr, síður en svo, oft var hann meðal fremstu manna og blés ekki úr nös. Mesta afrekið hans á þessum árum var sennilega för hans með nokkrum öðrum yfir hálendi Íslands að vorlagi. Farið var á gönguskíðum og tók ferðin um viku. Hann var yngstur þátttakenda – 16 ára gamall.
Ungur tók hann stórar og þroskaðar ákvarðanir – og skynsamlegar. Þegar hann var þrettán fjórtán ára gamall æfði hann sig á gönguskíðum við Glerárskóla og hafði íþróttakennari okkar það á orði að sá okkar sem stærstur væri (á þverveginn), væri sá eini sem hreyfði sig utan skylduleikfimina í skólanum. Þetta átti að vera hvatning til meiri hreyfingar frá íþróttakennaranum, en hún hitti ekki í mark. Menn hreyfðu sig ekki meira en þeir þurftu. Þannig var hugsunarhátturinn á þeim árum. Önnur skemmtileg ákvörðun Björgvins var að kaupa snjóþrúgur sem hann sá auglýstar í Degi. Hann fékk þær á góðu verði, því hann var ungur að árum og seljandinn ekki áfjáður í hámarkshagnað af sölunni. Snjóþrúgur? Við strákarnir vissum varla hvað snjóþrúgur voru. Þegar hann sigldi yfir djúpan snjó á gömlum en mjög svo nothæfum snjóþrúgum, þá sukkum við upp í klof. Hann var svolítið á undan sínum tíma í svo mörgu.
Eftir að hann varð eldri tók reiðhjólið við; fyrst hefðbundið fjallahjól og síðan rafknúið reiðhjól. Hann fór um allar trissur á því rafknúna og varla finnst sá staður á Norðurlandi, sem bauð upp á fáfarinn slóða, sem hann hafði ekki farið.
Síðari ár var hann gestgjafi góður að sækja heim. Það var alltaf eitthvað í boði. Eftir mannfagnað í tilefni 60 ára afmælis þeirra sem voru í Glerárskólanum, heimsótti ég Björgvin og var þar í yfir sex klukkutíma, enda um mikið að spjalla eftir langan aðskilnað. Fyrst var byrjað á saklausu tei með ýmsu bakkelsi og síðar um daginn var boðið upp á stórsteik með öllu tilheyrandi sem rann ljúflega niður. Hann kunni vel til verka í eldhúsinu og hefði getað orðið góður kokkur. Þennan dag sagði hann mér líka frá baráttunni við þann illvíga sjúkdóm sem herjaði á hann og þær lýsingar voru ekki fagrar. Björgvin var baráttumaður og hann gaf ekki þumlung eftir í stríði sínu við sjúkdóminn. Ég held að allar þær vökur og sársauki sem fylgdu baráttunni hefðu riðið meðalmanninum að fullu, en að lokum hafði hinn illvígi óvinur betur. Ég votta eiginkonu Björgvins, börnum þeirra og öðru aðstandendum samúð mína. Ég þakka samfylgdina í gegnum lífið. Við sjáumst í Sumarlandinu.
Stefán Sigurðsson
Steingrímur Björnsson
Steingrímur Björnsson
Steingrímur Björnsson
Steingrímur Björnsson – lífshlaupið