Fara í efni
Fréttir

200 þúsund söfnuðust fyrir Matargjafir

Sveinspróf í matreiðslu var haldið í fjórða skipti í Verkmenntaskólanum á Akureyri (VMA) í síðustu viku og á góðgerðarkvöldverði sem haldinn var af því tilefni söfnuðust 200.000 krónur sem renna til Matargjafa Akureyri og nágrenni.

Níu matreiðslunemar (kokkar) luku sveinsprófi að þessu sinni en þar sem framreiðsla (nám þjóna) var ekki kennd í VMA í vetur stefndi allt í að enginn yrði til þess að bera fram matinn og þar af leiðandi ekki hægt að halda veislu. Framreiðslumenn á svæðinu tóku hins vegar til sinna ráða þannig að veisla var haldin með pompi og prakt.

Framreiðsla var fyrst kennd í VMA árið 2023 og því haldið sveinspróf í framreiðslu samhliða sveinsprófi í matreiðslu, þar sem níu framreiðslunemar kláruðu sveinspróf og markaði það tímamót í sögu greinarinnar á Norðurlandi.

Alls voru 54 gestir sem mættu á kvöldverðinn þar sem meðal annars var þjónað með enskum framreiðsluhætti af fati til gesta.

Sex rétta kvöldverður – fyrir enga gesti?

Sveinspróf í matreiðslu og framreiðslu er margþætt en einn prófþátturinn er sex rétta kvöldverður sem er iðulega framreiddur til gesta og fagmeistara nemanna.

Þetta er jafnan mjög hátíðleg stund og markar endalok krefjandi náms og prófs hjá nemanum. Í ár var framreiðslan ekki kennd í  Verkmenntaskólanum sem fyrr segir og því stefndi allt í að þessi gestakvöldverður yrði ekki að veruleika og að matreiðslunemar myndu því elda þennan sex rétta kvöldverð fyrir enga gesti.

Framreiðslumannateymið í kvöldverðinum. Frá vinstri: Alexander Magnússon, Þuríður Margrét Thorlacius, Jón Heiðar Sveinsson, Ingibjörg Bergmann Bragadóttir, Björg Elva Friðfinnsdóttir, Mónika Sól Jóhannsdóttir, Einar Karl Guðmundsson og Saga Margrét Blöndal.

Slógu tvær flugur í einu höggi

„Á föstudeginum stefndi í það að ekki yrðu gestir í sveinsprófinu, sem er auðvitað óhefðbundið og mjög svekkjandi fyrir sveinsprófstaka og aðstandendur þeirra, og meistara líka,“ segir Ingibjörg Bergmann, framreiðslumeistari og einn eigenda Múlabergs Bistro&Bar á Akureyri.

„Að leggja alla þessa vinnu og ástríðu í þetta gríðarlega krefjandi prófverkefni og henda matnum svo í ruslið – það er ótrúlega leiðinlegt. Þetta eru auðvitað sex réttir fyrir sex gesti sem þarf að skila á ákveðinn hátt,“ segir hún.

Ingibjörg segir framreiðslumenn á svæðinu hafa ákveðið að kanna hvort þeir gætu með sameiginlegu átaki leyft meisturum nemanna, aðstandendum og öðrum gestum að fagna með tilvonandi sveinum og gera sem mest úr þessari stóru stund í lífi sveinsprófstakanna og skemmst er frá því að segja að það tókst með glæsibrag.

Framreiðslumenn á svæðinu tóku höndum saman og buðu fram krafta sína við alla undirbúningsvinnu og vinnu við kvöldverðinn sjálfan, endurgjaldslaust. Ákveðið var að bjóða upp á vínpörun til gesta með kvöldverðinum og að framreitt yrði líkt og í sveinsprófi í framreiðslu með ýmsum framreiðsluaðferðum.

Úr varð hugmynd að slá tvær flugur í einu höggi og styrkja gott málefni í leiðinni með að rukka inn á viðburðinn 5.000 kr. og að allur ágóði myndi renna til góðgerðarmála. Fyrir valinu varð Matargjafir Akureyri og nágrenni.

Matreiðslumennirnir, standandi við vegginn, að loknu sveinsprófi í Verkmenntaskólanum. Frá vinstri: Aðalsteinn Óli Magnússon, Aron Nökkvi Erlendsson, Ísak Örn Björgvinsson, Patrekur Óli, Grétar Már Björnsson, Ottó Daníel, Mikael Páll Davíðsson, Kamilla Steindórsdóttir og Gareese Gray.

Allir tilbúnir að hjálpa

„Það lá beinast við að gera þetta að góðgerðarkvöldverði í leiðinni og styrkja þessi frábæru samtök sem vinna svo óeigingjarnt starf allan ársins hring í sjálfboðavinnu. Það er svo gríðarlegur meðbyr og allir tilbúnir að hjálpa svo við vorum ekki lengi að fá styrki og stuðning frá birgjum og svo margir framreiðslumenn klárir að aðstoða í undirbúning og kvöldverði sem er alveg ómetanlegt – enda muna flestir eftir stressinu og álaginu sem fylgdi sínu sveinsprófi og vilja því ólmir hjálpa,“ segir Ingibjörg.

„Mig langar að þakka sérstaklega Innnes, Mekka, Blómaval/Húsasmiðjunni og Blómabúð Akureyrar fyrir þeirra styrki – það hækkaði þessa upphæð sem við náum að gefa áfram alveg gríðarlega. Auðvitað fá allir aðrir sem tóku þátt í þessum viðburði bestu þakkir og langsótt að þylja þá alla upp en Jón Heiðar Sveinsson, framreiðslumeistari á Múlabergi, á sérstakt hrós skilið fyrir ómetanlega hjálp í undirbúningi. Það var ótrúlegt að taka þátt í svona verkefni og að það séu allir svona boðnir og búnir að gera og græja, vinna frítt og brosandi út að eyrum á meðan – það er svo frábært fólk í þessum geira á Akureyri, það er ekki hægt að segja annað,“ segir Ingibjörg.

Eftirminnileg kvöldstund

Hluti af sveinsprófi í framreiðslu er að búa til blómaskreytingu á borð, sem er hluti af borðlagningu sveinsprófsnema.
„Við ákváðum að taka þetta alla leið fyrst við vorum á annað borð byrjuð og skelltum í 8 blómaskreytingar en við fengum fullt af gefins blómum frá Blómavali og einnig Blómabúð Akureyrar. Við seldum svo allar blómaskreytingarnar á uppboði um kvöldið og náðum að hækka styrkinn til Matargjafa um 60 þúsund krónur.“

Ingibjörg segir að viðburðurinn hafi heppnast einstaklega vel. „Úr varð virkilega eftirminnileg kvöldstund með glæsilegum mat að hætti matreiðslunemanna – sem nú geta kallað sig nýsveina,“ segir hún.