Fara í efni
Fréttir

„Við þurftum að tala saman í frímínútum...“

Rannveig Guðmundsdóttir talaði fyrir hönd 40 ára brautskráningarnema. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Þótt margt hafi breyst á 40 árum er eitt sem stendur alltaf eftir, sagði Rannveig Guðmundsdóttir þegar hún flutti ávarp fyrir hönd 40 ára brautskráningarnema á brautskráningarhátíð Verkmenntaskólans á Akureyri í Hofi á föstudaginn: „Skólinn er ekki bara hús eða námsbrautir, skólinn er minningar, fólkið, vináttan og kennararnir sem höfðu áhrif. Samræðurnar í frímínútum, augnablikin sem höfðu mótandi áhrif á mann og mistökin sem kenndu okkur alltaf eitthvað. Og það merkilega er að sum þessara tengsla entust miklu lengur en maður hefði nokkurn tímann trúað þegar maður sat á kaffistofunni sötrandi Bragakaffi og hélt að stærsta vandamál lífsins væri skilafrestur á verkefni.“

Einfaldara líf

Rannveig sagði það sérstaka tilfinningu að standa á sviðinu í Hofi, 40 árum eftir að hún útskrifaðist frá VMA, „eins og hann var þá rétt að byrja að kallast í daglegu tali. Það var vorið 1986. Þá var lífið einfaldara, kannski ekki alltaf auðveldara en einfaldara,“ sagði Rannveig. „Boðleiðir voru stuttar og aðgengi að stjórnendum skólans auðvelt. Ef maður þurfti að ná í stjórnanda eða kennara bankaði maður bara upp á. Það voru engin netföng, engir Teams-fundir og engin lykilorð sem þurfti að endurstilla á þriggja vikna fresti. Við vélrituðum verkefni og ritgerðir á ritvélar sem nú sjást eingöngu á Þjóðminjasafninu. En einhvern veginn lifðum við þetta af.“

Frá brautskráningarhátíð Verkmenntaskólans í Hofi á föstudaginn. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Skólaganga á milli húsa ...

Rannveigu minnti að um 70 nemendur hefðu útskrifast vorið 1986. „Í dag er skólinn orðinn miklu stærri, námsleiðir fjölbreyttari og nemendurnir fleiri. En andinn er alltaf sá sami,“ sagði hún.

„Skólinn var á þessum árum enn að slíta barnsskónum. Og við sem komum úr ólíkum áttum fengum eiginlega það hlutverk að ryðja brautina og sanna að þessi skóli ætti fullt erindi. Húsnæði skólans var í byggingu og við nemendur vorum á þessum árum skólans dreifðir út um allt. Gamli Iðnskólinn við Þórunnarstræti var nýttur, kennslustofur voru útbúnar í Íþróttahöllinni og það má með sanni segja að skólagangan hafi verið skólaganga á milli þessara húsa hér á Brekkunni.“

Kaffistofan var samfélagsmiðill

Rannveig rifjaði upp að tölvur hefðu verið að hefja innreið sína „en voru ekki í vösum okkar allan daginn líkt og í dag. Við þurftum að tala saman í frímínútum, horfast í augu og hlusta hvert á annað. Mannleg samskipti voru einfaldlega mannleg,“ sagði hún. „Nemendakaffistofan í Íþróttahöllinni var okkar samfélagsmiðill. Þar sátum við saman, ræddum um lífið og tilveruna og drukkum Bragakaffi í lítravís. Það var okkar orkudrykkur, ekkert latté, engir orkudrykkir með neonlitum og enskum nöfnum. Bara Bragakaffi, sterkt, heitt og nóg af því.“

Mynd: Hilmar Friðjónsson

Hún nefndi að lítill hópur úr hennar árgangi hefði það að venju að hittast árlega; „þrátt fyrir að fólk hafi flust burt frá Akureyri, stofnað fjölskyldur, skipt um störf, fengið grá hár eða jafnvel misst þau alveg, þá höfum við alltaf gefið okkur tíma til að hittast aftur,“ sagði Rannveig. „Kannski er það vegna þess að þessi vinátta sem varð til á þessum árum festist einhvern veginn dýpra. Við kynntumst áður en fólk fór að uppfæra ímyndina sína á samfélagsmiðlum, við þekktum hvert annað eins og við vorum í raun og veru. Og það er dálítið sérstakt að átta sig á því fjörutíu árum síðar að sumt af því mikilvægasta sem maður tók með sér úr skólanum var ekki endilega það sem stóð í námskrá, heldur fólkið sem sat við hliðina á manni upp á hvern einasta dag.“

Sömu grunnatriði

Rannveig lauk máli sínu með þessum orðum:

„Kæru brautskráningarnemar! Þið eruð að útskrifast inn í heim sem er hraðari, tæknivæddari og flóknari en sá heimur sem beið okkar árið 1986. En þrátt fyrir allar tækniframfarirnar gilda sömu grunnatriðin enn; að mæta fólki af virðingu, að standa við orð sín, að kunna að vinna með öðrum og sýna seiglu. Tæknin getur hjálpað okkur um margt en það er enn ekkert app til sem kemur í staðinn fyrir heilindi, dugnað og góð samskipti. Lífið tekur óvæntar beygjur, sumt gengur upp, annað ekki en oft verða bestu kaflarnir í lífi manns einmitt þegar hlutirnir fara ekki alveg eftir áætlun. Látið ykkur hlakka til morgundagsins, horfið fram á við því framtíðin er óskrifað blað og þið eruð rithöfundar í ykkar lífi. Munið að árangur mælist ekki bara í gráðum eða starfsheitum heldur hvernig manneskja þú ert. Munurinn á því sem þú ert og hvað þú vilt verða er það sem þú gerir.

Að lokum vil ég óska ykkur öllum innilega til hamingju með daginn. Njótið hans því árið 2026 skiptir enn mestu máli það sama og fyrir fjörutíu árum í VMA; gott fólk, góð vinátta og heitt kaffi. Til hamingju!“

„Tökum með okkur mikinn lærdóm út í lífið“

Við brautskráninguna í Hofi flutti ávarp fyrir hönd brautskráningarnema Hulda Þórey Halldórsdóttir, nýstúdent af íþrótta- og lýðheilsubraut og formaður nemendafélagsins Þórdunu síðustu tvö skólaár.

„Ein sú besta ákvörðun sem ég hef tekið var að flytja hingað til Akureyar, verandi Skagfirðingur, búa á heimavistinni og hefja nám í VMA þrátt fyrir að þekkja nánast engan. Það var ekki fyrr en kennarar fóru að stoppa mig á göngunum og spyrja hvað tæki við eftir útskrift að ég áttaði mig á fyrir alvöru að þetta væri að klárast,“ sagði Hulda Þórey meðal annars.

Hulda Þórey Halldórsdóttir nýstúdent flutti ávarp brautskráningarnema. Mynd: Hilmar Friðjónsson

„Þó að þessum kafla sé nú að ljúka og við útskriftarnemar að fara í sitthvora áttina, þá er ljóst að við tökum með okkur mikinn lærdóm út í lífið.
Á þessum þremur árum hef ég kynnst svo mikið af frábæru fólki sem hefur gert skólagönguna svo miklu betri og ég hef eignast vini og vinkonur til lífstíðar.“

Hulda Þórey sagði að upplifun sín af framhaldsskólaárunum væri ekki sú sama ef hún hefði ekki verið í nemendafélaginu Þórdunu. „Að fá að vera formaður síðastliðin tvö skólaár hefur verið eitt það lærdómsríkasta og skemmtilegasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur hér í VMA og gefið mér tækifæri til að kynnast skólanum og fólkinu á allt annan hátt,“ sagði hún. „Ég hef fengið að taka þátt í að byggja upp félagslífið í skólanum, skipuleggja viðburði og upplifað bæði krefjandi og skemmtilega tíma með frábæru fólki. Þetta hefur kennt mér ótrúlega mikið um skipulag, ábyrgð og samvinnu, en ekki síður um vináttu og samheldni.“


„Verkmenntaskólinn er byggðamál“

Sex hætta – tvö hafa kennt í VMA frá stofnun