Ómar Magni orðinn rafvirki aðeins 17 ára
Ómar Magni Halldórsson, sem útskrifaðist frá Verkmenntaskólanum á Akureyri (VMA) í vor, fékk sveinsbréf sitt í rafvirkjun afhent við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi síðastliðinn föstudag. Hann er aðeins 17 ára gamall og samkvæmt frétt á vefsíðu VMA mun hann vera yngsti rafvirki í sögunni á Íslandi sem fær sveinsbréf í faginu.
Ómar Magni er fæddur 14. nóvember 2008 og hóf nám í rafvirkjun við VMA haustið 2023, þá tæplega 15 ára gamall. Hann lauk námi frá skólanum síðastliðið vor og tók sveinspróf í rafvirkjun í júní, aðeins nokkrum dögum eftir útskrift. Meðan á náminu stóð vann Ómar Magni jafnframt við rafvirkjun og safnaði markvisst þeim verkefnum og þeirri reynslu sem krafist er fyrir ferilbók. Hann býr á Svalbarðseyri en starfar hjá Rafeyri á Akureyri.
Alls fengu 19 rafvirkjar og fjórir rafeindavirkjar sveinsbréf sín afhent við athöfnina í Hofi á föstudag. Meirihluti rafvirkjanna lauk námi sínu við VMA og allir fjórir rafeindavirkjarnir komu þaðan.
Í fréttinni kemur einnig fram að samhliða þessu hafi einnig verið gestagangur í rafdeild VMA. Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar, og Hafdís Reinaldsdóttir, skrifstofustjóri Rafmenntar, komu í heimsókn og færðu nýnemum í rafdeild vinnubuxur frá Helly Hansen. Að gjöfinni standa Rafmennt, Rafiðnaðarsamband Íslands og Samtök rafverktaka.

Nýnemar í rafdeild VMA með buxurnar, ásamt Þór Pálssyni og Hafdísi Reinaldsdóttur frá Rafmennt og Ástu F. Flosadóttur aðstoðarskólameistara VMA. Mynd af Flickr-síðu VMA.