Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Snæfríður Ingadóttir

Snæfríður Ingadóttir, rithöfundur og fjölmiðlakona, er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie, í nýjasta hlaðvarpsþættinum af 10 bestu

„Snæfríður hefur skrifað eitthvað um 10 bækur. Allavega það margar að við vorum ekki viss hvað þær voru margar þegar við reyndum að telja. Hún elskar Spán og menntaði sig í Noregi og bjó þar í sex ár og starfaði,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum. „Hún hefur ferðast víða og starfar í dag við sitt draumastarf. Hvaðan kemur hún og hvert hefur hún farið? Hún starfaði sem blaðamaður lengi og flutti norður í kringum hrunið. Saman þá ræðum við hennar sögu og öll ferðalögin frá því hún var lítil stúlka til dagsins í dag.“

Snæfríður Ingadóttir er lesendum Akureyri.net af góðu kunn vegna skrifa á vefinn síðustu mánuði.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.