Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Ólafur Göran Ólafsson Gros

Ólafur Göran Ólafsson Gros, kvikmyndagerðarmaður, er nýjasta viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie hlaðvarpsþáttaröðinni 10 bestu.

„Ólafur kom og talaði strax um Svíþjóð. Hann á sænska móður og íslenskan pabba. Saman fórum við yfir hvernig væri að þurfa að hugsa á tveimur tungumálum,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum. „Hann útskrifaðist úr virtum skóla í Stokkhólmi sem kvikmyndagerðarmaður og lærði meðan á kóvíd stóð. Hann tók stökkið sumarið 2020. Hann starfar nú sem tæknistjóri hja RÚV og lofaði mér að framleiða íslenska rómantíska gamanmynd og eina jólamynd. Listinn hans var af betri gerðinni. Ólafur er að skrifa handrit að sinni fyrstu bíómynd og ef allt gengur er ekki langt í að hún verðir framleidd.“

Smelltu hér til að hlusta á þáttinn.