Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Katrín Ösp Jónsdóttir

Katrín Ösp Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, verkefnastjóri og ljóðskáld, er nýjasti viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í hlaðvarpsþáttaröðinni 10 bestu.

Katrín Ösp hefur skrifað greinar um samúðarþreytu og kulnun „og er að mínu mati okkar allra fremsti sérfræðingur á landinu hvað það varðar,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum. „Hún hefur sökkt sér í málið og komið texta sínum á hið háa Alþingi sem þingsályktunartillögu í gegnum alþingismann þar. Hún er með háleit markmið þegar kemur að þessum málum og vill að allir sem eru í áhættuhópi geti nýtt sér úrræði sem snýr að þessu,“ segir hann.

„Við fórum auðvitað yfir hennar 10 bestu lög og sögu hennar ásamt því töluðum við opinskátt um sorgina. En Katrín starfar sem verkefnastjóri hjá Heilsu og sálfræðiþjónustunni hér á Akureyri.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.