Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Guðríður Sveinsdóttir

Guðríður Sveinsdóttir kennari í Giljaskóla er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta hlaðvarpsþættinum af 10 bestu. Guðríður er tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna í ár sem framúrskarandi kennari.

Guðríður er gift Heiðari Davíð Bragasyni sem er yfirgolfkennari hjá GA. Þau bjuggu saman í Svíþjóð og Luxemborg meðan hann var atvinnumaður í golfi; „hún segir okkur svo söguna þegar þau ákváðu að flytja heim í kringum hrunið meðan Heiðar var styrktur af bönkunum sem féllu,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum. „En svo voru þau búsett á Dalvík í 10 ár sem áttu að vera sex mánaða stopp og eru nú búsett á Akureyri. Virkilega gott spjall við þennan metnaðarfulla kennara sem ætlaði aldrei að verða kennari. Hún er einnig menntaður hagfræðingur og stóð á krossgötum þegar hún gat valið á milli þess að fara að kenna eða fara í bankana að vinna. Valið var auðvelt.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.