Fara í efni
Minningargreinar

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir – lífshlaupið

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir fæddist á Akureyri 31. júlí 1975. Hún lést 22. febrúar 2026 í Reykjavík.

Foreldrar Sólveigar eru Soffía Guðmundsdóttir, f. 15. júlí 1955, eiginmaður hennar er Reynir Sigurðsson, og Valgeir Sigurðsson, f. 25. janúar 1952, eiginkona hans er Siggerður Jóhannesdóttir.

Sammæðra systkini Sólveigar eru Sólveig Bjarnar Hemmer og Sigurður Reynisson. Samfeðra systkini eru Jóhannes, Svanur og Unnur Valgeirsbörn.

Eiginmaður Sólveigar er Garðar Sigurðsson, f. 1. apríl 1972. Þau gengu í hjónaband 30. júlí 2005. Börn þeirra eru Guðrún Björk, f. 8. október 1998, eiginmaður hennar er Steinar Gauti Þórarinsson, Kolbrún María, f. 18. apríl 2002, sambýlismaður hennar er Egill Rúnar Halldórsson, og Eyrún Arna, f. 17. apríl 2008. Barnabörn eru tvö og eitt á leiðinni.

Sólveig útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 2001 frá Háskólanum á Akureyri og starfaði á lyflækningdeild Sjúkrahússins á Akureyri alla sína starfsævi, síðasta árið sem deildarstjóri og í um áratug þar á undan sem aðstoðardeildarstjóri. Sólveig var einnig virk í félagasamtökum á borð við Ladies Circle og Agora, sem og sjálfboðaliði fyrir Skautafélag Akureyrar.

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Friðbjörn Sigurðsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 12:40

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Pétur Þór Jónasson skrifar
10. mars 2026 | kl. 09:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Starfsfólk lyflækningadeildar SAk skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Elísabet Hlín Adolfsdóttir  skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Sonja Dröfn Helgadóttir skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Þóra Ester Bragadóttir skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30