Arnþór Örlygsson
Kveðja frá Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri
Við hjá þessu góða félagi misstum góðan félaga og stjórnarmann fyrir u.þ.b. þremur vikum og á föstudaginn var þann 7.11.26 kvöddum við hann í síðasta sinn. Arnþór Örlygsson var aldrei kallaður annað en Addi okkar þegar við vorum að ræða málefnin og hann komst ekki á fundi þá vitnuðum við oft í hann. þannig var Addi, hvar sem hann kom var hann fljótt orðinn einn af hópnum, og yfirleitt einn af þeim sem ekki fór framhjá neinum.
Við stjórnarmenn félagsins sendum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur og þökkum henni jafnframt fyrir að hafa fengið að njóta krafta hans, vináttu og félagsskapar öll þessi ár. Reyndar er spurning hvort nokkur hefði getað talað Adda ofan af því sem hann hafði einsett sér.
Addi kom í stjórn félagsins árið 2006, og sat þar óslitið til hinsta dags. Þrátt fyrir ungan aldur var hann sá sem lengst hafði setið í núverandi stjórn eða í samfellt 20 ár. Slíkt er ekki algengt hjá svo ungum manni en hann var aðeins 27 ára en hann kom inn í stjórn félagsins.
Hákon Hákonarson, þáverandi formaður, kom fyrst auga á Adda á félagsfundi og sagði síðar að það hefði geislað af þessum unga og áhugasama manni. Brosið, ákafinn og þessi sérstaki létti hlátur vöktu athygli hans, en ekki síður það sem Addi hafði fram að færa. Það komast jú ekki allir í stjórn með brosi og hlátri einum saman, þótt það hafi greinilega hjálpað Adda á þeirri stundu.
Addi varð einn af okkar öflugustu stjórnarmönnum. Hann hafði ákveðnar skoðanir og var óhræddur við að láta þær í ljós. En það sem einkenndi hann sérstaklega var hæfileikinn til að sjá einfaldar lausnir á flóknum málum. Þótt hann væri ekki alltaf sammála síðasta ræðumanni þá hafði hann einstakt lag á því að fá okkur til að horfa á málin frá öðru sjónarhorni og sjá leiðina áfram. Rétt eins og góður verkstjóri sem sér hvernig best er að leysa verkið, án þess að gera það flóknara en þörf er á.
Svo var það húmorinn og þær voru ekki ófáar góðlátlegu athugasemdirnar sem við fengum að heyra þar sem glitti í stríðnisglampa í augum og þessu ógleymanlega brosi sem því fylgdi. Oftar en ekki átti hann líka síðasta orðið hvort sem það var á stjórnarfundum eða á öðrum góðum stundum sem við áttum með honum, sem segir svo margt um þennan einstaka dreng.
Tvívegis fram að þessum tíma gafst Adda kostur á að íhuga að taka við formennsku eða varaformennsku í stjórn félagsins, en hann kaus frekar að vera áfram almennur stjórnarmaður og hafa þar áhrif á sinn hátt.
Þegar rætt var um áframhaldandi stjórnarsetu hans þegar núverandi formaður þurfti að stilla upp í stjórn til kosninga en það var árið 2012, þá sagði hann við mig að hann væri nú alveg tilbúinn að halda áfram, því það þyrfti að minnsta kosti einn almennilegan bifvélavirkja í stjórnina, en fyrir þá sem ekki þekkja til þá er núverandi formaður félagsins einnig bifvélavirki.
Svo kom þetta breiða bros og stríðnishláturinn sem sagði allt sem segja þurfti. Addi hafði þetta lag við okkur alla og fengum við skotin reglulega þegar honum þótti tilefni til.
Svona var Addi. Engin sýndarmennska, bara einlægni, kraftur, góðlátleg stríðni og virðing fyrir félögum sínum. Hann lagði mikinn metnað í félagsstarfið og lagði sérstaka áherslu á menntun í okkar greinum. Það gerði hann með áhrifum sínum innan FMA í Iðunni Fræðslusetri og fékk gjarnan þar kennara norður ásamt Kristjáni hjá Kraftbílum til að halda námskeið sem honum þótti vanta hér á svæðið.
Kraftbílar með þá Kristján og Adda hafa stutt vel við skólann með aðstöðu þegar þess hefur þurft og Addi allt í öllu ásamt því að hann tók oft að sér að kenna við Verkmenntaskólann þegar þörfin var hvað stærst þá gat hann ekki neitað skólanum um aðstoð. Hann hafði miklar skoðannir á menntakerfinu og getuleysi þess í svo mörgum málum er aðstöðuna varðaði.
Hann hafði ekki síður skoðanir um hvernig fræðslustofnun okkar iðnaðarmanna Iðan Fræðslusetur ætti að vinna að endurmenntuninni og lagði sig allan fram um þau mál með þeim kennurum sem hafa starfað í bílgreinunum á hans tíma.
En umfram allt var Addi ekki bara stjórnarmaður. Hann var vinur sem gott var að eiga að og leita til. Það verður skrýtið að sitja stjórnarfundi án þess að heyra hláturinn hans eða eiga von á næstu skemmtilegu athugasemd.
Við félagar hans í núverandi og fyrrverandi stjórn þökkum honum innilega fyrir samfylgdina, vináttuna og allt það góða sem hann lagði til félagsins enda liggja að baki ansi margar fundargerðir, þar sem hans spor eru mörkuð í sögu félagsins.
Þau lokaorð sem okkur stjórnarmönnum Félags málmiðnaðarmanna Akureyri og vina hans þar og eru okkur efst í huga en virðast frekar fátækleg en segja allt það sem segja þarf.
Elsku Addi okkar, við hefðum allir viljað hafa þig miklu lengur með okkur og þótt þú hafir oft átt síðasta orðið á fundunum okkar, þá hefðum við allir viljað eiga við þig miklu fleiri orð.
Takk fyrir allt, kæri vinur.
Hvíldu í friði.
Björgvin Birgisson
Björgvin Birgisson – lífshlaupið
Björgvin Birgisson
Steingrímur Björnsson