Fara í efni
Minningargreinar

Arnþór Örlygsson

Kveðja frá Eyjafjarðardeild 4x4

Þau eru þung sporin hjá félögum Eyjafjarðardeildar 4x4 í dag, við kveðjum kæran félaga og vin Arnþór Örlygsson. Addi Örlygs, eins og hann var alltaf kallaður, var í jeppaferð með vinnufélögum sínum þegar hræðilegt slys varð. Ferð sem átti að verða skemmtiferð nokkra vinnufélaga breytist á augabragði í mikinn harmleik.

Addi starfaði með okkur í Eyjafjarðardeild 4x4 um margra ára skeið og var ætíð tilbúinn að leggja sitt af mörkum í leik og starfi deildarinnar og ekki síst í vinnuferðum í skálann okkar Réttartorfu. Addi byrjaði að koma með foreldrum sínum, þeim Önnu og Örlygi, í Réttartorfu og síðan voru börn hans einnig farin að koma með, þannig að þarna voru stundum þrjár kynslóðir mættar og lögðu sitt af mörkum til að gera skálann og umhverfi hann sem best.

Það var einkennandi við Adda var að hann var ætíð kátur og brosandi í vinnuferðum en alvaran var aldrei langt undan ef því var að skipta, Addi var alltaf mjög vinnusamur í vinnuferðum og það er erfitt að hugsa til þess að vinnuferðin í júní síðastliðnum hafi verið sú síðasta sem hann kemur með í en minningin um góðan dreng lifir áfram með okkur og ég efast ekki um að hann fylgist með okkur.

Fráfall Adda var öllum þeim sem stunda ferðamennsku á jeppum mikið áfall þar sem jeppamenn reyna alltaf að gæta fyllsta öryggis í ferðum en slysin gera ekki boð á undan sér og þó það sé erfitt að segja það þá verðum við að reyna að læra af þessu slysi, við hreinlega verðum að gera það.

Eyjafjarðardeild 4x4 hafa borist mikið af samúðarkveðjum til handa fjölskyldu Adda frá 4x4 deildum um allt land og það ber að þakka.

Samstarfsfélagar Adda á Kraftbílum hafa misst mikinn leiðtoga enda var Addi þekktur fyrir hæfileika sína í viðgerðum á vörubílum og gott skipulag á vinnutilhögun.

Við í Eyjafjarðardeild 4x4 viljum senda vinnufélögum Adda hjá Kraftbílum okkar innilegustu samúðarkveðjur, þið hafið misst kæran vin og samstarfsfélaga.

Okkar kæru vinum og félögum Önnu og Örlygi sendum við innilegar samúðarkveðjur sem og systkinum hans þeim Hrafnhildi, Erlingi og Einari, ykkar missir er mikill.

Fjölskyldu Adda, Ingu Kristínu eiginkonu hans og börnunum Júlíu Fanney, Ellý Sæunni, Önnu Lilju, Örlygi Vilberg og Reimari Árna sendum við okkar innilegustu samúðarkveðju því ykkar missir er mestur og megi góður Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg.

Guð blessi Arnþór Örlygsson.

Jóhann Hauksson
formaður Eyjafjarðardeildar 4x4

Björgvin Birgisson

Hulda Steingrímsdóttir skrifar
27. október 2026 | kl. 21:30

Björgvin Birgisson – lífshlaupið

27. október 2026 | kl. 06:00

Björgvin Birgisson

Stefán Sigurðsson skrifar
27. október 2026 | kl. 06:00

Steingrímur Björnsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
23. október 2026 | kl. 08:00

Steingrímur Björnsson

Vignir Már Þormóðsson skrifar
23. október 2026 | kl. 07:00

Steingrímur Björnsson

Gunnur Vignisdóttir skrifar
23. október 2026 | kl. 06:00