Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson rafvirkjameistari fæddist 26.07 1940 á Siglufirði. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 21.07 2026. Foreldrar hans voru Jóhannes Kristinn Sigurðsson f. 04.07. 1910, d. 14.09. 1998 og Laufey Sigurpálsdóttir, f. 23.12. 1913, d.12.05. 1999.
Systkinin voru 12 og var Ófeigur fimmti í röðinni.
Ófeigur kvæntist 12.08. 1964 Steinunni Helgu Sigvaldadóttur, f. 25.02. 1944. Börn þeirra eru:
Jóhannes Björn f. 16.03. 1965, giftur Pia Maud Petersen og eiga þau þrjár dætur. María f. 29.06. 1991, Eva Björk f. 18.06. 1993 og Sara Björk f. 25.03. 2001.
Helgi Hólmar f. 24.12. 1966, Maki var Hulda Guðný Finnbogadóttur f. 14.10. 1970, hún lést 25.08. 2021. Helgi Hólmar á þrjú börn, Guðmund Hólmar f. 05.08. 1992, móðir Auðbjörg Geirsdóttir f. 08.07. 1972., Kolfinnu Ósk f. 11.04 1998 og Steinar Helga f. 07.07.2001, móðir Hulda Guðný Finnbogadóttir
Heiðbjört Ófeigsdóttir f. 23.04. 1971. Heiðbjört á Nönnu Amelíu f. 28.01. 1996, faðir Nönnu er Baldur Snorrason f. 21. 02. 1973, Magneu Steinunni Hagalín f. 09.04.2006 og Sveinbjart Ófeig Hagalín f. 21.08.2009, faðir þeirra er Magni Hagalín Sveinsson f. 01.08. 1966. Sonur Magna og stjúpsonur Heiðbjartar er Viktor Hagalín Magnason f. 25.06. 1996.
Langafabörnin eru 10.
Ófeigur ólst upp á Siglufirði en átta eða níu ára fór hann í sveit í Skagafjörðinn á Sjávarborg þar sem hann vann við ýmis störf fram yfir fermingu. Ófeigur fékk heimakennslu á Sjávarborg, var á Laugum í Reykjadal, lærði síðan rafvirkjun og var rafvirkjameistari.
Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau Steinunn á Dalvík, Svarfaðardal og Mývatnssveit en byggðu síðan hús í Stapasíðu á Akureyri og flutti fjölskyldan þangað haustið 1981 og hafa þau hjónin búið þar síðan.
Samhliða námi tók Ófeigur meirapróf og vann ýmis störf þar á meðal vinna á jarðvinnu tækjum, keyra mjólkurbíl, rútur og sjá um búskap. Sem rafvirki vann hann hjá Helga Indriða á Dalvík, Kísiliðjunni í Mývatnssveit 1973 til 1981 er hann hóf störf hjá RARIK og lauk starfsæfinni þar 2011
Ófeigur hafði gaman af að ferðast, fara í sund, spila brids og syngja. Skemmtilegast þótti honum að vera með fjölskyldunni í allskonar ævintýrum. Grauturinn í hádeginu á laugardögum var fastur liður í mörg ár þar sem hann eldaði grjónagraut og allir mættu sem gátu. Svarfaðardalurinn var honum kær og fannst honum gott að vera í Skeggsstöðum með fólkinu sínu. Að ferðast um Ísland og erlendis með systkinum sínum og fjölskyldunni voru sennilega bestu stundirnar þar sem hann naut sín vel. Farið var út um allt land með tjald, tjaldvagn, Camper og síðast hjólhýsi og hálendið var í uppáhaldi. Í ferðum erlendis vildi hann ekki liggja á sólarströnd heldur ferðast um og skoða áhugaverða staði.
Ófeigur naut þess að hafa barnabörnin í kringum sig, styðja þau í því sem þau voru að gera, hafa ofan fyrir þeim og leyfa þeim að draga sig í allskonar æfingar og ævintýri.
Ófeigur verður jarðsunginn frá Glerárkirkju í dag, 6. ágúst 2026, klukkan 10:00