Fara í efni
Minningargreinar

Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson

Í dag kveðjum við elsku afa okkar. Afi Ódi var einstaklega rólegur, traustur, fyndinn og handlaginn maður sem sýndi ást sína í verkum frekar en orðum. Hann var alltaf tilbúinn að rétta fram hjálparhönd og ekkert verkefni var of stórt eða of lítið ef fjölskyldan þurfti á honum að halda. Hann mætti á alla viðburði okkar barnabarnanna og var alltaf til í að dunda sér með okkur tímunum saman. Afi gerði besta grjónagrautinn og gaf hlýjustu knúsin.

Það er skrítin tilhugsun að koma í Stapasíðuna og þar sé enginn afi Ódi. Við söknum þín elsku afi og góðu samverustundanna með þér.

Við barnabörnin verðum alltaf sveppirnir þínir og minning þín lifir ávalt í hjörtum okkar.

Ástarkveðjur,

Kolfinna, Magnea og Nanna

Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið

14. september 2026 | kl. 08:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Anna Gréta Halldórsdóttir skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Íþróttafélagið Þór skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00

Halldór Hallgrímsson – lífshlaupið

28. ágúst 2026 | kl. 08:00

Halldór Hallgrímsson skipstjóri

Sigfús Ólafur Biering Helgason skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 08:00

Elías Þorsteinsson

Jóhann Hauksson skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00