Fara í efni
Minningargreinar

Jónas Sigurjónsson – lífshlaupið

Jónas Sigurjónsson fæddist 30. júlí 1949 í Ólafsfirði. Hann lést á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri 1. júní 2026.

Foreldrar hans voru Sigurjón Ósland Jónasson, f. 22. desember 1918 d. 28. ágúst 1994 og Bjarney Bjarnadóttir f. 28. ágúst 1919 d. 26. desember 2011.

Systkini Jónasar eru Kristjana Ólöf Jónína Sigurjónsdóttir, f. 15. október 1941, Bjarni Ósland Sigurjónsson, f. 9. ágúst 1947 og Steinþór Ósland Sigurjónsson, f. 21. ágúst 1952, d. 8. desember 1989.

Jónas kvæntist 9. ágúst 1969 Hallfríði Lilju Einarsdóttur (Fríðu). Foreldrar hennar voru Helga Guðbjörg Brynjólfsdóttir, f. 1. október 1926, d. 6. mars 2018 og Einar Eggerz Eggertsson, f. 9. ágúst 1925, d. 11. nóvember 1985.

Börn Jónasar og Fríðu eru:

1) Helga Björg Jónasardóttir f. 19. febrúar 1968, gift Jóhannesi Má Jóhannessyni f. 16. ágúst 1962, börn þeirra eru Ísak Már f. 1989, Bjarney Anna f. 1992 og Fríða Snædís f. 1995.

2) Rósa Jónasardóttir f. 8. ágúst 1972, í sambandi með Magnúsi Stefánssyni f. 10. júlí 1971, börn Rósu eru Eva Líneik f. 1996, Daði f. 2001 og Ína f. 2008 með fyrrverandi eiginmanni Andra Má Þórarinssyni f. 16. janúar 1972

3) Vala Ólöf Jónasdóttir f. 13. maí 1977, gift Gísla Karel Elíssyni f. 25. janúar 1977, börn þeirra eru Elís f. 2006, Tinna f. 2009 og Lára f. 2011.

4) Sigurjón Jónasson f. 28. mars 1979, kvæntur Normu Valdísi Hallgrímsdóttur f. 22. desember 1977, börn þeirra eru Hallgrímur Hrafn Guðnason f. 1998 (barn Normu frá fyrra sambandi), Áróra Laufey ´f. 2006, Þórey Sif f. 2009 og Jónas Jökull f. 2009.

Anna Gunndís Guðmundsdóttir f. 23. febrúar 1983 ólst að hluta upp hjá Jónasi og Fríðu og Kwansema Dumor var skiptinemi hjá þeim. Auk þess eru barnabarnabörnin orðin þrjú talsins og tvö væntanleg.

Jónas ólst upp í Ólafsfirði og lauk grunnskólaprófi frá Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar. Hann flutti til Akureyrar 16 ára gamall til að nema húsgagnasmíði.

Hann lærði til sveins hjá húsgagnaframleiðandanum Valbjörk og síðar til meistara. Hann stofnaði Valsmíði árið 1974 og rak það í hálfa öld.

Jónas var vinamargur og bóngóður. Hann var mikill fjölskyldumaður og einstaklega barngóður. Hann týndi aldrei barninu í sjálfum sér og það var alltaf stutt í leik og gleði.

Hann var virkur félagi í Ferðafélagi Akureyrar á yngri árum og naut þess að ferðast á fjöllum. Á síðari árum ferðaðist hann með fjölskyldu og vinum vítt og breitt um heiminn. Hann var félagi í Oddfellowreglunni frá 1987 og gegndi hann mörgum trúnaðarembættum þar.

Jónas verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag, 19. júní kl. 13:00.

Jónas Sigurjónsson

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 12:15

Jónas Sigurjónsson

Jóhannes Már Jóhannesson skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Systkini Hallfríðar Einarsdóttur og makar skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Ragna Lárusdóttir og Snorri Gylfason skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Vala Ólöf Jónasdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Helga Björg Jónasardóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00