Fara í efni
Minningargreinar

Jónas Sigurjónsson

Ó pabbi minn, hve undursamleg ást þín var.
Ó pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar.
Aldrei var neinn, svo ástúðlegur eins og þú.
Ó pabbi minn, þú ætíð skildir allt.

Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn.
Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði.

Ó pabbi minn, ég dáði þína léttu lund.
Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt.
Ó pabbi minn, hve undursamleg ást þín var.
Æskunnar ómar ylja mér í dag.
Höfundur: Þorsteinn Sveinsson

Þvílíkt lán að fá eignast svona einstakan pabba. Hann var minn besti vinur og sálufélagi. Stundum þurftum ekkert að tala saman því það var eins og við gætum lesið hugsanir hvors annars. Notuðum fjarskipti í samskiptum löngu áður en farsímar komu til sögunnar.

Pabbi var einstaklega glaðlyndur, jákvæður og hjálpsamur við alla sem leituðu til hans.

Alltaf brosandi, hlæjandi, styðjandi, stríðandi, smíðandi, með endalausar hugmyndir og lausnir á allskonar vandamálum. Hann hjálpaði mér að smíða ýmislegt sem ég hannaði þegar ég var í hönnunarnámi, meðal annars stofuborð sem var byggt á æskuminningu og hægt var að breyta með einu handtaki í rennibraut. Við systkinin fengum að leika okkur með nánast allt á heimilinu og hluti af því var að breyta húsgögnum í leiktæki. Hann kenndi mér að vera sjálfbjarga í allskonar verkefnum og standa á eigin fótum. Hann hjálpaði okkur líka mjög mikið í alls kyns framkvæmdum í gegnum tíðina, endurbótum, viðgerðum og nýbyggingum.

Pabbi var algjör barnavinur og hætti aldrei að leika sér. Hann lék við barnabörnin, barnabarnabörnin, frændsystkin og börn sem komu í heimsókn, öllum fannst hann skemmtilegur. Hann var traustur vinur, kunni að hlusta með hlýju og athygli og veitti mörgum stuðning sem á þurftu að halda, var einstaklega bóngóður og kunni varla að segja nei. Ég veit að hann skildi eftir góðar minningar í hjörtum flestra samferðamanna.

Við ferðuðumst mikið saman, við hjónin og foreldrar mínir og heimsóttum ýmsa framandi staði sem dæmi má nefna Kúbu, Namibíu, Suður-Afríku, Dubai, Ástralíu og Nýja Sjáland auk ferðalaga til landa nær okkur. Þegar lítið var hægt að ferðast vegna heimsfaraldurs fórum við i dásamlega ferð saman til Færeyja þar sem við flökkuðum um og nutum samveru.

Pabbi var búinn að takast á við fjórða stigs krabbamein í tæp 7 ár. Á þeim tíma var hann búinn að klára flest öll fyrirliggjandi verkefni til að undirbúa mömmu að takast á við lífið án hans. Flytja í hentugra húsnæði, útbúa fína útiaðstöðu, smíða gróðurhús og ræktunarkassa. En svo snerist dæmið við, mamma veiktist mjög alvarlega og kvaddi þetta líf tæpum 9 mánuðum á undan pabba. Hann sýndi einstakt jafnlyndi, jákvæðni og æðruleysi í þessum erfiðu veikindum og missi sem hann þurfti að takast á við á síðustu mánuðum ævinnar.

Mig langar að þakka starfsfólki heimahlynningar og lyflækningadeilda SAk fyrir góða umönnun.

Ég kveð elsku besta pabba minn með söknuði og þakklæti.

Helga Björg Jónasardóttir

Jónas Sigurjónsson

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 12:15

Jónas Sigurjónsson

Vala Ólöf Jónasdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Jóhannes Már Jóhannesson skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Systkini Hallfríðar Einarsdóttur og makar skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Ragna Lárusdóttir og Snorri Gylfason skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson – lífshlaupið

19. júní 2026 | kl. 10:50