Fara í efni
Minningargreinar

Jónas Sigurjónsson

Elsku pabbi minn

Þú varst alveg einstakur karakter, svo ljúfur og blíður, hjálpsamur, vandvirkur og duglegur en á sama tíma svo svakalega stríðinn og skemmtilegur. Ég var marga daga að jafna mig eftir síðasta apríl gabb frá þér!

Þú kunnir svo vel að ná því besta út úr lífinu, njóta þess til fulls. Með þitt bjarta bros og þitt jafnaðargeð, þú gerðir allt svo auðvelt.

Ég er þakklát fyrir að hafa fengið örlítið af skapinu þínu.

Takk fyrir að kenna mér að meta hversdagsleikann, elska hverja mínútu, hvort sem hún er erfið eða falleg og sjá alltaf það góða í öllu og öllum.

Takk fyrir að vekja hjá mér áhugann á húsgögnum og innréttingum sem beindi mér þá leið á menntaveginum og markaði mitt ævistarf. Ég veit ekki hvern ég get núna hringt í þegar mig vantar upplýsingar.

Þú varst sannur vinur sem svo margir leituðu til og alltaf varstu tilbúinn að hlusta og hjálpa. Öll börn elskuðu þig, enda varstu fljótur að detta í leik, alveg sama hver áhugi þeirra var.

Takk fyrir að vera alltaf svona skemmtilegur, takk fyrir að breyta alltaf sorg í gleði.

Ef rödd mín hefði vængi, þá flygi hún til þín
og myndi hvísla í eyru þín hve sárt ég sakna þín.
Þú kenndir mér á lífið, þú sýndir mér svo margt
þú huggaðir og verndaðir ef lífið var of hart.
Þú kenndir mér að syngja, þú dansaðir við mig
ef slæmir draumar herjuðu var nóg að faðma þig.

Þú kenndir mér að trúa á mig er sjálfstraustið var lágt
þú faðmaðir og hughreystir þegar ég átti eitthvað bágt.
Þú kenndir mér að syngja, þú dansaðir við mig
ef slæmir dagar herjuðu var nóg að faðma þig.
Þú gafst mér allt sem þurfti til að lukkan væri mín
það eina sem ég lærði ekki er að lifa án þín.
(Höfundur: Hrafnhildur Viðarsdóttir)

Góða ferð yfir regnbogabrúna og hlakka til að knúsa þig þegar minn tími kemur. 

Vala Ólöf

Jónas Sigurjónsson

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 12:15

Jónas Sigurjónsson

Ragna Lárusdóttir og Snorri Gylfason skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Helga Björg Jónasardóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Systkini Hallfríðar Einarsdóttur og makar skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Jóhannes Már Jóhannesson skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson – lífshlaupið

19. júní 2026 | kl. 10:50