Fara í efni
Minningargreinar

Jónas Sigurjónsson

Í dag kveðjum við elsku Jónas pabba hennar Helgu Bjargar vinkonu minnar og fyrr í vetur kvöddum við Fríðu konuna hans. Þau áttu þó nokkuð í mér og Snorra og mig langar að segja ykkur hvað kom til.

Flestir okkar vina þekkja sögu okkar Snorra, við vorum búin að lofa hvort öðru að gifta okkur ef að við værum bæði á lausu á 20 ára stúdentsafmælinu okkar í MA. Þegar nær dró, þá vorum við farin að flörta á Facebook og ég farin að tilkynna öllum í Lúx að ég væri að fara heim til að hitta gaurinn sem ég ætlaði að giftast. Flestir héldu að ég væri bara að bulla en Helga Björg ákvað að fá foreldra sína í lið með mér og það fannst þeim ekki leiðinlegt. Búið var um mig í gestaherberginu í kjallaranum í Oddfellowhúsinu og gert þar ástarhreiður. Þegar að við vorum að læðast upp úr kjallaranum daginn eftir fyrsta kvöldið, sátu Jónas og Fríða um okkur með bros á vör og tóku ekki annað í mál en að Snorri fengi morgunmat áður en að hann hélt heim. Þau skemmtu sér mjög vel yfir þessu og ég get ekki ímyndað mér hvernig þetta hefði allt farið ef að ég hefði ekki átt þessi yndislegu hjón að. Ég hafði verið heimalingur hjá þeim á menntaskólaárunum og séð yngri systkini Helgu Bjargar vaxa og dafna. Seinna fékk ég að njóta margra góða stunda með fjölskyldunni þegar ég kom til Íslands á sumrin, af því að Helga Björg vinkona vissi að það var lítið mál að fá að draga mig með. Alltaf var maður velkomin í hópinn og alltaf var gaman hjá Fríðu og Jónasi. Matarboðin voru mörg og stór en Fríða vippaði upp mat og kökukræsingum af sinni einstöku rósemi á meðan að Jónas sagði okkur fyndnar sögur um allt milli himins og jarðar. Fyrst í Dalsgerði, svo í Oddfellowshúsinu en að lokum voru fjölskylduboðin komin í hendur Helgu Bjargar og Jóhannesar á Hesjuvöllum.

Jónas og Fríða áttu svo mikið í okkur og alltaf fannst okkur öllum jafngaman að rifja upp kærustuparasöguna þegar að við hittumst. Það var mikið áfall að frétta af veikindum Fríðu, við höfðum kíkt við í Víðilundi rétt áður en hún veiktist og svo var hún bara farin. Þrátt fyrir að vera orðin brothættur, mætti Jónas í jólaboð á Hesjuvöllum núna í desember. Helga hafði boðið okkur líka í hangikjöt, og erum við þakklát fyrir að eiga þessa síðustu góðu minningu með honum. Þessir ungu foreldrar vinkonu minnar voru svo full af orku og lífsgleði að aldrei kom manni til hugar að þau myndu kveðja okkur svona fljótt. Með hjartað fullt af þakklæti, kveðjum við þessi einstöku hjón og munum alltaf minnast þeirra. Ykkur öllum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur, missir ykkar er mikill en ég veit að Fríða og Jónas sendu ykkur út í lífið með dýrmætt veganesti sem verður ekki frá ykkur tekið.

Takk fyrir allt og allt,

Ragna og Snorri

Jónas Sigurjónsson

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 12:15

Jónas Sigurjónsson

Vala Ólöf Jónasdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Helga Björg Jónasardóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Systkini Hallfríðar Einarsdóttur og makar skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Jóhannes Már Jóhannesson skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson – lífshlaupið

19. júní 2026 | kl. 10:50