Fara í efni
Minningargreinar

Jónas Sigurjónsson

Jónas kom inn á Akureyri frá Ólafsfirði til að nema húsgangasmíði á Valbjörk. Fljótlega hitti hann Fríðu systur okkar (Hallfríði Einarsdóttur) en hún var þá 16 ára og hann 18. Skemmst er frá því að segja að frá því að þau kynntust og allt til enda lífsins voru þau óaðskiljanleg.

Jónas varð strax einn af hópnum enda við systkinin á svipuðum aldri nema Anna sem var bara 2ja ára. Fyrir henni varð hann einn stóri bróðir í viðbót. Í Hjalteyrargötunni var oft mikið fjör og Jónas tók fullan þátt í því. Hann átti einstakt samband við tengdamömmu sína og oft mikið glens þeirra á milli.

Jónas og Fríða byrjuðu búskap sinn í Brekkugötu 7 en um það leyti sem Helga Björg elsta dóttir þeirra fæddist þá fengu þau leigða íbúð á efri hæðinni í Hjalteyrargötu 1 þar sem foreldrar okkar bjuggu. Fljótlega fóru þau að huga að íbúð fyrir sig og úr varð að þau byggðu í raðhúsi í Dalsgerði 6 þar sem að þau bjuggu á meðan börnin 4 voru að vaxa úr grasi. Biggi bróðir bjó þar með þeim um tíma.

Jónas stofnaði fyrirtækið Valsmíði, fyrstu árin á Eyrinni en svo byggði hann stórt verkstæði í Frostagötu. Þar ráku þau fyrirtækið í mörg ár, Fríða teiknaði allskonar innréttingar sem Jónas svo smíðaði af mikilli vandvirkni. Hann var mjög vinsæll og átti erfitt með að segja nei við fólk þannig að oft var mikið að gera. Jónas seldi svo verkstæðið í þorpinu og flutti sig aftur á Eyrina þar sem að hann rak fyrirtækið áfram þangað til hann hætti að vinna.

Jónas var alltaf í góðu skapi og kvartaði aldrei. Hann sá alltaf það góða í öllum og hallmælti aldrei neinum og eins var með Fríðu. Þau voru einstaklega samrýmd hjón enda þegar talað var um þau voru þau alltaf nefnd bæði. Jónas var ótrúlega stríðinn og skemmtilegur, en alltaf á góðum nótum og öllum þótti vænt um hann. Börnin í stórfjölskyldunni elskuðu hann öll enda var hann alltaf til í leik og gleði. Árlegt var hjá Bótarættinni sem kennd var við Einar pabba okkar að fara í ættarútilegur hvert sumar. Þar var Jónas hrókur alls fagnaðar og Fríða búin að baka snúða o.fl. ofan í allt liðið. Þarna vorum við 8 systkinin, makar og 30 barnabörn og oftar en ekki einhver aukabörn með sem vissu af fjörinu.

Jónas og Fríða voru með stórt hjarta og alltaf tilbúin að hjálpa öllum. Eitt árið tóku þau skiptinema frá Ghana, hana Kwansemu sem hefur haldið sambandi við þau alla tíð síðan og börnin hennar eignuðust afa og ömmu á Íslandi þegar að þau fæddust. Þegar að Laufey systir okkar og Guðmundur ákváðu að flytja suður um heiðar var yngsta dóttir þeirra 14 ára og ekki alveg tilbúin til að flytja suður. Jónas og Fríða buðu henni að flytja til sín svo að hún gæti klárað skólann og þar var hún í nokkur ár sem aukadóttir þeirra.

Hjónin elskuðu að ferðast og gerðu mikið af því að mestu erlendis. Ekki endilega á staði sem hinn hefðbundni Íslendingur fer á, t.d. áttu þau ógleymanlega fjölskylduferð til Afríku. Eftir að þau hættu að vinna þótti þeim afar gaman að fara með vinum til Tene. Þau voru bæði lengi í Oddfellow reglunni og nutu þess að vera í þeim félagsskap.

Fríða lést óvænt eftir skammvinn veikindi í september 2025 og þá missti Jónas lífsförunautinn sem hann elskaði svo mikið. Jónas var þá og allt til dánardægurs búinn að glíma við mikil veikindi og hann lést svo 1. júní 2026

Elsku Jónas okkar, takk fyrir yndislega samveru og nána vináttu í öll þessi ár. Ykkar hjóna er sárt saknað.

Elsku Helga Björg, Rósa, Vala, Jonni, makar og börn, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra.

Anna Einarsdóttir, Hulda Einarsdóttir, Laufey Einarsdóttir, Birgir Einarsson og makar.

Jónas Sigurjónsson

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 12:15

Jónas Sigurjónsson

Jóhannes Már Jóhannesson skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Ragna Lárusdóttir og Snorri Gylfason skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Vala Ólöf Jónasdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Helga Björg Jónasardóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson – lífshlaupið

19. júní 2026 | kl. 10:50