Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Við fráfall Jóns Gulla er stórt skarð höggvið í okkar stóra frændgarð frá Ytri-Á, Kleifum í Ólafsfirði. Í okkar augum var Jón Gulli ósnertanlegur, sá stærsti, sá hraustasti, sá traustasti og við eigum erfitt með að skilja að hann sé ekki lengur á meðal okkar.
Ættfólk okkar hefur verið samheldið og á undanförnum áratugum höfum við reglulega komið saman til að halda húsakosti þar í sem bestu ástandi, sem og við uppbyggingu og viðhald rafstöðvarinnar. Ófá eru þau skipti sem Jón Gulli mætti á staðinn, tók að sér ýmis snúin verkefni og leysti þau af einstakri röggsemi með miklum sóma. Það var unun að fylgjast með honum að störfum; hann vann hratt, örugglega og af festu. Engin vandamál, ekkert úrræðaleysi – aðeins vilji til verka og verkefnin kláruð með þeim hætti sem honum einum var lagið.
Við frændurnir höfum í nær tvo áratugi hist árlega á verkstæði Tryggva frænda og haldið okkar hefðbundnu sviðalappaveislu. Þar var Jón Gulli fastagestur og lagði ávallt sitt af mörkum til að veislan gæti orðið að veruleika. Framvegis munum við frændurnir halda góðri minningu hans á lofti og skála fyrir okkar trausta frænda.
Elsku frændi, fyrir hönd okkar Ytri-Ár-frændanna vil ég þakka þér fyrir samfylgdina, vináttuna, tryggðina og allt það sem þú lagðir af mörkum fyrir ættina og þitt fólk.
Við vottum Önnu og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð á þessari erfiðu stundu.
Minning Jóns Gulla lifir.
F.h. Ytri-Ár-frænda
Jón Birgir Guðmundsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson – lífshlaupið
Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson
Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson – lífshlaupið