Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Kæri Gulli.
Þegar ég kynntist Sigurjóni var ég fljót að átta mig á að þið feðgar voruð ansi líkir á marga vegu. Það er greinilegt að hann fékk ekki einungis hæðina, skallan og broshrukkurnar frá þér, heldur líka dugnað, þrjósku og verkvit.
Trausti saknar þín mikið. Hann skilur ekki af hverju hann fær ekki að hitta þig aftur en hann man alveg að núna ertu uppi í skýjunum hjá öllum fuglunum sem þú elskar. Við tölum mikið um þig og skoðum myndir og stundum spyr hann hvenær við ætlum aftur til Króatíu. Þú naust þín vel í hlutverkinu og varst yndislegur afi.
Ég hugsa svo oft um þegar við fórum í Kraumu sumarið 2022 og við sögðum ykkur að ég væri ólétt. Við áttum svo góða stund og þið Anna urðuð svo innilega spennt og glöð. Sama gleðin einkenndi þig þegar þú varst í kringum Trausta.
Ég vona að þú vitir hvað ég er þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og litlu fjölskylduna mína. Þú varst svo hjálpsamur og góður, engum líkur. Ég sagði oft takk við þig, en það var oftast í einhverju hálfkáki þegar þú varst að spenna Trausta í bílstólinn sinn og hann, og jafnvel Freydís líka, kvartandi og lítið spennt fyrir heimferðinni.
Systkinin hafa hjálpað okkur á þessum erfiðu tímum. Þau sýna okkur að einn daginn, ég veit svo sem ekki hvernig eða hvenær, lærum við á nýjan raunveruleika án þín.
Takk fyrir allt, ég sakna þín.
Halla Mjöll
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson