Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Elsku pabbi.
Ég sakna þín mikið. Mér finnst erfiðast að fá aldrei að hitta þig aftur, heyra röddina þína og hláturinn þinn.
Við unnum saman lengi. Það var alltaf hægt að leita til þín í vinnunni, það var alveg sama hver spurningin var, þú vissir svörin og varst fullur af fróðleik. Það var mikið að gera hjá þér í vinnunni en alltaf gafstu þér tíma til að hjálpa samstarfsfélögum okkar. Okkur krökkunum fannst þú alltaf vinna mjög mikið áður fyrr og stundum sáum við þig ekki, né heyrðum frá þér, vikum saman. Ég er þakklátur fyrir að þú hættir að vinna svona mikið í burtu síðustu ár. Þá hittumst við miklu oftar og urðum fyrir vikið nánari. Það er skrítið að sjá skrifborðið þitt núna, tómlegt og hljótt.
Þú varst mín stærsta fyrirmynd í lífinu. Alltaf til í að gera allt og framkvæmdir svo margar hugmyndir sem þú fékkst. Þó það hafi eflaust verið margar til viðbótar sem ekki litu dagsins ljós. Þú lést ekkert stoppa þig. Þú meira að segja byggðir sumarbústað á snjóflóðasvæði og ákvaðst að grafa tvo gáma í hlíðina í þeirri von að snjóflóðið myndi renna yfir bústaðinn. Mér finnst það lýsa því vel hvað þú varst úrræðagóður og lausnamiðaður.
Það var gott að hlusta á þig og ég hafði alltaf gaman af því að heyra frá þér. Enda varstu forvitinn með eindæmum og ósjaldan með kíkinn á lofti. Sérstaklega fannst mér skemmtilegt að heyra frá ferðum þínum í bláu búðina (gámasvæðið), oftar en ekki komstu heim með eitthvað misgáfulegt.
Þú varst einstakur afi. Alltaf tilbúinn í að fara að leika eða gera eitthvað nýtt, sama hvernig viðraði. Trausti talar um hjólaferðirnar ykkar, þegar þú sóttir hann í leikskólann og þegar þú blést á honum hárið eftir sturtu, sem hann auðvitað varð að kenna okkur. Hann skilur ekki af hverju hann fær ekki að hitta þig aftur, enda varstu mjög stór partur af lífi hans.
Við munum segja Trausta og Freydísi sögur af þér, af rugludögunum, búningunum, vöfflunum, öllum sumrunum í Ólafsfirði og öllum þínum uppátækjum þar, og að þú elskaðir þau afar heitt.
Takk fyrir allt pabbi, ég elska þig.
Sigurjón Hilmar
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson