Fara í efni
Minningargreinar

Jón Geir Ágústsson

Elskulegur tengdafaðir minn, Jón Geir Ágústsson lést þann 10. desember eftir skammvinn veikindi.

Mig langar að minnast tengdaföður míns í nokkrum orðum. Ég var 17 ára þegar ég kom inn í fjölskyldu hans og strax fann ég fyrir mikilli hlýju og umhyggjusemi frá þeim hjónum Jóni Geir og Heiðu.

Þau voru ófá skiptin sem ég leitaði til tengdapabba með allskonar fyrirspurnir og verkefni. Alltaf leysti hann úr þeim fljótt og vandlega og hvatti mig áfram. Ég átti með honum margar dýrmætar stundir meðal annars við árbakkann í Ólafsfjarðará, hestamennsku, smíðar og eiginlega allt sem hægt var að hugsa sér.

Ég kveð þið elskulegur tengdafaðir minn og veit að Heiða hefur tekið vel á móti þér. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar.

Kallið er komið,komin er nú stundin,vina skilnaðar viðkvæm stund.Vinirnir kveðjavininn sinn látnaer sefur hér hinn síðsta blund.Höf. Valdimar Briem 

Þinn tengdasonur,
Sigurður Unnsteinn Sigurðsson

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Kári, Vera Kristín, Kristján Logi, Róbert Bragi og Karen Emilía skrifa
11. mars 2026 | kl. 22:00

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Friðbjörn Sigurðsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 12:40

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Pétur Þór Jónasson skrifar
10. mars 2026 | kl. 09:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Sonja Dröfn Helgadóttir skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Starfsfólk lyflækningadeildar SAk skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30