Fara í efni
Minningargreinar

Jóhann Pétursson – lífshlaupið

Jóhann Pétursson fæddist á Akureyri 29. ágúst 1969. Hann varð bráðkvaddur 24. júní 2022.

Foreldrar hans eru hjónin Pétur Heiðar Sigurðsson, f. 26. nóvember 1942, og Gunnborg Hugrún Gunnarsdóttir, f. 12. ágúst 1948. Systir Jóa er Hólmfríður Björk Pétursdóttir, f. 26. maí 1975, maki Þorvaldur Örn Arnarson, f. 6. júlí 1974.

Maki Jóa er Valrún Helga Magnúsdóttir, f. 28. apríl 1968. Foreldrar hennar voru Magnús Valsteinn Tryggvason, f. 5. febrúar 1936, d. 15. maí 2020, og Lilja Magnúsdóttir, f. 7. mars 1941, d. 4. september 1988.

Börn þeirra eru Heiðar Gauti, f. 2. nóvember 2002, Lilja Katrín, f. 2. nóvember 2002 og Gunnborg Petra, f. 13. október 2004.

Jói fæddist og ólst upp á Akureyri. Hann gekk í Lundarskóla og þaðan lá leiðin í Gagnfræðaskóla Akureyrar. 16 ára var Jói farinn að vinna á sjó og var sjómaður allt til æviloka. Lengst af starfaði hann fyrir Samherja, nú síðast á skipinu Björgvini EA.

Útför Jóa fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 4. júlí 2022, klukkan 13.00.

Arnþór Örlygsson

Jóhann Rúnar Sigurðsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 14:30

Arnþór Örlygsson

Jóhann Hauksson skrifar
06. nóvember 2026 | kl. 06:00

Björgvin Birgisson

Hulda Steingrímsdóttir skrifar
27. október 2026 | kl. 21:30

Björgvin Birgisson

Stefán Sigurðsson skrifar
27. október 2026 | kl. 06:00

Björgvin Birgisson – lífshlaupið

27. október 2026 | kl. 06:00

Steingrímur Björnsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
23. október 2026 | kl. 08:00