Fara í efni
Minningargreinar

Heba Ásgrímsdóttir

Elsku besta amma í heimi. Það er risa­sprunga í hjart­anu mínu sem mun aldrei lag­ast. Ég finn fyr­ir yfirþyrm­andi sorg en ég reyni eins og ég get að hugsa um all­ar góðu stund­irn­ar okk­ar sam­an til að hlýja hjart­anu mínu, því þær voru svo sann­ar­lega marg­ar. Ég gæfi allt til að fá eitt knús og einn koss frá þér. Þú varst ein­stök mann­eskja, það er eng­inn eins og þú. Hlát­ur­inn þinn og brosið þitt lýsti upp öll her­bergi sem þú komst í. Þú hef­ur verið mín stoð og stytta í gegn­um erfiða jafnt sem góða tíma í gegn­um tíðina. Lífið verður ekki eins án þín gullið mitt. Ég elska þig enda­laust og mun sakna þín sárt. Guð gefi þér góða nótt amma mín.

Heba Þór­hild­ur Stef­áns­dótt­ir.

Björgvin Birgisson

Hulda Steingrímsdóttir skrifar
27. október 2026 | kl. 21:30

Björgvin Birgisson – lífshlaupið

27. október 2026 | kl. 06:00

Björgvin Birgisson

Stefán Sigurðsson skrifar
27. október 2026 | kl. 06:00

Steingrímur Björnsson

Íþróttafélagið Þór skrifar
23. október 2026 | kl. 08:00

Steingrímur Björnsson

Vignir Már Þormóðsson skrifar
23. október 2026 | kl. 07:00

Steingrímur Björnsson

Gunnur Vignisdóttir skrifar
23. október 2026 | kl. 06:00