Fara í efni
Minningargreinar

Haukur Jóhannsson

Kveðja frá Knattspyrnufélagi Akureyrar

Látinn er góður KA félagi, Haukur Jóhannsson, eftir erfið veikindi.

Haukur var mikill íþróttamaður og lék knattspyrnu bæði með ÍBA og KA.

Afrek Hauks voru þó aðallega á skíðum þar sem hann vann á annan tug titla. Hann varð margfaldur Íslandsmeisari, keppti tvisvar á heimsmeistaramóti og á einum Ólympíuleikum.

Haukur var afskaplega ljúfur og þægilegur í viðmóti. Hann var glaðlyndur, hlýr og skemmtilegur og stutt í brosið og hláturinn. Haukur var mikið snyrtimenni og allt sem hann gerði var mjög vel gert og unnið af nákvæmni og natni.

Haukur var mikill KA maður. Hann stundaði Kjallaraklúbb KA með félögum sínum og lék með Old Boys í sunnudagsfótboltanum. Hann bar hag félagsins mjög fyrir brjósti og var alltaf tilbúinn að vinna fyrir félagið sitt við ýmis verk þegar á þurfti að halda.

Genginn er góður og traustur félagi.

Er sárasta sorg okkur mætir,
og söknuður huga vorn grætir,
þá líður sem leiftur úr skýjum,
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(HJH)

Knattspyrnufélag Akureyrar minnist Hauks með þakklæti og vottar Ragnheiði Haraldsdóttur, eftirlifandi eiginkonu hans, börnum þeirra og öðrum ástvinum innilega samúð.

Birgir Ágústsson

Vilhelm og Skúli Ágústssynir skrifa
30. apríl 2026 | kl. 06:00

Jón Hólmgeirsson

Líney Snjólaug Diðriksdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 09:00

Jón Hólmgeirsson

Helena Kristín Brynjólfsdóttir og Brynjólfur Jón Brynjólfsson skrifa
10. apríl 2026 | kl. 12:30

Jón Hólmgeirsson – lífshlaupið

10. apríl 2026 | kl. 08:00

Jón Hólmgeirsson

Kristján I. Jónsson, Þorbjörg K. Jónsdóttir og Hólmgeir Jónsson skrifa
10. apríl 2026 | kl. 08:00

Páll Halldór Jónsson

Arna Dögg Arnarsdóttir skrifar
31. mars 2026 | kl. 09:00