Elías Þorsteinsson
Kveðja frá Eyjafjarðardeild 4x4
Í dag kveðjum við félagar Eyjafjarðardeildar Ferðaklúbbsins 4x4 einn af okkar bestu félögum, Elías Þorsteinsson. Elli Þorsteins byrjaði að starfa fyrir Eyjafjarðardeild fyrir um 25 árum og lét strax að sér kveða í starfi deildarinnar. Hann sat um tíma í stjórn og var formaður skálanefndar um nokkur ára skeið, hann var einnig formaður ferðafrelsisnefndar. Það er ekki ofsögum sagt að allan þann tíma sem hann Elli starfaði í Eyjafjarðardeild var hann mjög virkur, hvort sem það voru verkefni tengd skálanum okkar eða önnur málefni sem hann brann fyrir enda vildi hann veg deildarinnar sem mestan. Á þeim tíma sem Elli var formaður skálanefndar var ráðist í að byggja við Réttartorfuskála og þá var gott að hafa Ella, hann fór ótal vinnuferðir í skálann á meðan þessu verki stóð, bæði sumar sem vetur og var duglegur að fá menn með sér í vinnuferðir.
Þegar ferðafrelsisnefnd Eyjafjarðardeildar var stofnuð þá var Elli sjálfskipaður formaður hennar og þar var hann á heimavelli. Starf þessarar nefndar var vel þekkt innan Ferðaklúbbsins 4x4 og víðar. Öll árin sem Elli stýrði nefndinni þá héldu hann og félagar hans fleiri hundruð fundi og skrifuðu hundruð athugasemda við ráðagerðir Vatnajökulsþjóðgarðar og stóðu vörð um ferðafrelsi félagsmanna Ferðaklúbbsins 4x4, starf þessara manna sem störfuðu með Ella í nefndinni í nærri 20 ár verður seint full þakkað.
Elli var mjög duglegur að ferðast á fjöllum hvort sem það var í skipulögðum ferðum Eyjafjarðardeildar eða í ferðum með félögum sínum. Það eru margar ferðir sem menn muna eftir með Ella á Patrolnum og oftast var Elli fremstur enda afburða bílstjóri. Elli mæti ætíð á þrettándagleði Eyjafjarðardeildar og allir muna eftir því þegar hann lyfti höndum og sagði „kæru félagar“ þegar hann tilkynnti hvenær kveikt yrði í brennunni.
Síðan var það Athvarfið, en þar hittust eldri félagar Eyjafjarðardeildar tvisvar í viku á bílaverkstæði Jóns Gunnars og leystu heimsmálin og stundum var rifist um alla skapaða hluti en alltaf í bróðerni.
Elli hafði ekki getað komið til okkar í Athvarfið um langt skeið þannig að við Elli ákváðum að við myndum koma til hans, við hittumst hjá Ella og Siddu 9. júlí, og þá lék Elli á als oddi og fyrir okkur vini hans er þetta dýrmæt stund enda áttum við ekki von á að þetta yrði sú síðasta. Nú þegar komið er að kveðjustund þá ber að þakka Ella fyrir allt hans mikla starf fyrir Eyjafjarðardeild 4x4 og hvað hann lagði mikið af mörkum til að gera veg deildarinnar sem mestan. Við vinir Ella sem hittumst í Athvarfinu viljum þakka honum fyrir allar góðu stundirnar, hans er saknað.
Fjölskyldu Ella, Sigurbjörgu konu hans og börnum þeirra, Unnari, Sonju, Arnari og Örvari sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Elíasar Þorsteinssonar.
Jóhann Hauksson,
formaður Eyjafjarðardeildar 4x4
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson – lífshlaupið
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson
Jón Gunnlaugur Sigurjónsson