Fara í efni
Minningargreinar

Eiður Baldur Sigþórsson

Við kveðjum góðan afa en minningarnar lifa áfram. Við erum þakklát fyrir allar góðu stundirnar, hvort sem þær voru úti í sumarbústað, á ferðalögum innanlands og erlendis, í útilegu, í stofunni heima eða með veiðistöng niðri á bryggju.

Við munum sakna handlagna öðlingsins sem gat öllu reddað og töfrað fram allt frá eðalmarmelaði og hátíðarmáltíð yfir í einbýlishús, sumarbústað og dúkkuhús. Allt með sömu vandvirkninni og ástríðunni.

Við eigum margar góðar minningar úr Langholtinu þar sem við barnabörnin vörðum miklum tíma saman með afa og ömmu. Þar vorum við alltaf velkomin og samverustundirnar og gistipartýin fjölmörg. Afi undi sér vel í garðinum og fengum við að læra um og aðstoða við alls kyns ræktun. Sterkar eru minningarnar um það þegar við tókum upp gulrætur, kartöflur og radísur með honum beint úr garðinum og borðuðum. Kjallarinn var líka alltaf spennandi og leyndardómsfullur en þar var ógrynni af alls kyns efnum á verkstæði afa.

Hér væri hægt að rifja upp ófáar sögurnar en ef við þekkjum þig rétt þá hefðir þú sennilega ekki verið of ánægður með það að fólk sé að lofsyngja þig á opinberum vettvangi.

Þú varst gjarnan dulur en alltaf hlýr. Hógvær og stundum úr hófi fram. Lést ekki alltaf mikið fyrir þér fara en það var aldrei langt í húmorinn.

Við njótum áfram ávaxta vinnu þinnar og verk þín munu standa sem dýrmætir minnisvarðar um ókomna tíð. Minning þín mun lifa áfram í þeim og með okkur.

Takk fyrir allt elsku afi.

Þín barnabörn,

Ásdís Rósa Frímannsdóttir

Eiður Þór Árnason

Sigríður Rósa Frímannsdóttir

Sölvi Hinrik Árnason

Tinna Björk Sigþórsdóttir 

Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið

14. september 2026 | kl. 08:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Íþróttafélagið Þór skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Anna Gréta Halldórsdóttir skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00

Halldór Hallgrímsson – lífshlaupið

28. ágúst 2026 | kl. 08:00

Halldór Hallgrímsson skipstjóri

Sigfús Ólafur Biering Helgason skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 08:00

Elías Þorsteinsson

Jóhann Hauksson skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00